Matur

Eva Laufey kveikti í pönnunni og Gummi Ben skar sig illa

Stefán Árni Pálsson skrifar
Ísskápastríð er nýr og skemmtilegur matreiðsluþáttur í umsjón Evu Laufeyjar og Gumma Ben sem jafnframt gegna hlutverki liðsstjóra.

Þátturinn hóf göngu sína á Stöð 2 fyrir nokkrum vikum og hefur hann slegið í gegn. Í þættinum í vikunni voru keppendur Gunnar Helgason og Felix Bergsson.

Eva Laufey var Gunnari í liði og Gummi Ben fékk þann heiður að vera með Felix Bergssyni í liði. Keppnin var þrískipt og þurftu liðin að útbúa forrétt, aðalrétt og eftirrétt. Neðst í fréttinni má sjá hvernig til tókst með aðalréttinn en tvö nokkuð spaugilegt atvik áttu sér stað í þættinum.

Annarsvegar náði Gummi Ben að skera sig það illa að kalla þurfti dómarana fram til að gera að sárum hans og hinsvegar náði stjörnukokkurinn Eva Laufey að kveikja í pönnunni sinni.

Hér að ofan má sjá þessa veislu.








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.