Tónlistarmaðurinn Jóhann Jóhannsson er tilnefndur til Golden Globe verðlaunanna fyrir tónlist sína í kvikmyndinni Arrival. Verðlaunaafhendingin verður haldin vestanhafs í byrjun næsta árs.
Jóhann vann einmitt Golden Globe árið 2015 fyrir tónlist sína í kvikmyndinni The Theory of Everything.
Það var í fyrsta skipti sem Íslendingur vinnur til verðlauna á Golden Globe. Hann hefur verið tilnefndur til Óskarsverðlauna síðustu tvö ár og er Jóhann að verða eitt virtasta tónskáldið í Hollywood.
Arrival kom út á árinu en þau Amy Adams, Jeremy Renner og Forest Whitaker fara með aðalhlutverkin. Denis Villeneuve leikstýrir myndinni og var hann í nánu samstarfi með Jóhanni eins og hann greindi frá í ítarlegu viðtali við Fréttablaðið fyrir nokkrum vikum.
Þær kvikmyndir sem berjast við Arrival í flokknum eru Hidden Figures, La La Land, Moonlight, og Lion.
Verðlaunin verða afhend 8. janúar á næsta ári. Kvikmyndin La La Land fær flestar tilnefningar að þessu sinni eða sjö talsins. Moonlight er tilnefnd til sex verðlauna. Þættirnir The People v. O.J. Simpson: American Crime Story fær fimm tilnefningar.
Hér má sjá allar tilnefningarnar til Golden Globe að þessu sinni.
Jóhann Jóhannsson tilnefndur til Golden Globe
