Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins kom saman til fundar í Valhöll klukkan tíu í morgun þar sem farið verður yfir stöðuna í stjórnarmyndunarviðræðum flokksins við Bjarta framtíð og Viðreisn. Forystumenn flokkanna þriggja funda svo formlega klukkan hálf tvö.
Leiðtogar flokkanna eru bjartsýnir á að þeim muni takast að mynda ríkisstjórn á næstu vikum. Greint var frá því í gær að samkomulag hafi náðst um öll þau stóru mál sem steyttu á skeri í síðustu viðræðum og að formennirnir muni nýta næstu daga í að skrifa stjórnarsáttmála.
Benedikt Jóhannesson, formaður Viðreisnar, gerir ekki ráð fyrir að það muni taka lengur en tvær vikur.
Fyrsti formlegi fundur flokkanna var í gær en Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, leiðir viðræðurnar.
Sjálfstæðismenn fara yfir stöðuna

Tengdar fréttir

Þjóðaratkvæði um ESB í stjórnarsáttmálanum
Stóru deilumálin í viðræðum Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar hafa verið útkljáð. Stjórnarsáttmáli verður skrifaður í vikunni. MS verður sett undir samkeppnislög, tollar lækkaðir á hvítt kjöt og kosið um ESB

Birgitta: Væri gaman að heyra hvaða málefni VG og Framsókn eru að ræða
Birgitta Jónsdóttir og Kolbeinn Óttarsson Proppé mættu í viðtal og ræddu stjórnarmyndun.

Lilja vill í ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokki og Vinstri grænum
Segir tímabært að á Íslandi verði nokkuð breið stjórn, ekki síst fyrir þær sakir að þrátt fyrir að vel gangi efnahagslega þá hafi þjóðin ekki enn alveg jafnað sig á efnahagshruninu sem hér varð.