Magnús heillaðist af Júlíönu þegar hann sá hversu áköf hún var í því að ná markmiðum sínum í Meistaramánuði þegar hún tók þátt í fyrsta skipti árið 2011. Blaðamaður bað hana um að segja frá ástarsögunni.
„Ég bjó úti í New York þegar strákarnir voru að gera þetta, og við áttum mikið af sameiginlegum vinum. Ég sá þetta sem fullkomið tækifæri til að byrja veturinn vel í skólanum og í leiðinni fanga athygli Magga. Það var mjög auðvelt því hann var farinn að „læka“ allar færslur hjá mér um leið og ég byrjaði að merkja þær með kassamerkinu Meistaramánuður. Síðan hittumst við þegar ég var í jólafríi á Íslandi tveimur mánuðum síðar og nú erum við gift og eigum barn og hund. Þannig að markmiðinu er náð.“

„Eftir því sem ég hef gert þetta oftar hef ég haft þetta hnitmiðaðra, hef haft færri en skýrari markmið. Einu sinni setti ég mér það markmið að læra alla leikmenn Manchester United utan að til þess að geta rætt um þá við manninn minn, það var reyndar algjör skellur að komast að því hversu oft þeir skipta um leikmenn. En ég get rætt mjög mikið um Manchester United 2013 árganginn,“ segir hún og hlær.
Hjónin setja sér alltaf nokkur sameiginleg markmið í Meistaramánuði en eru síðan oftast með sín eigin markmið líka sem þau einbeita sér að. „Það er gott að hafa þau uppi á vegg og peppa hvort annað.“
Þegar Júlíana er spurð að því hvort hún sé metnaðargjörn stendur ekki á svörum: „Já, auðvitað, mig langar alltaf að gera allt eins vel og ég get. Ég er samt ekkert á botninum ef ég næ ekki markmiði sem ég set mér í Meistaramánuði en maður þarf samt að vera agaður.“
Júlíana tekur að sjálfsögðu þátt í Meistaramánuði að þessu sinni og segir að sér finnist frábært að hann sé í febrúar núna því október sé alltof langur. „Ég er ekki alveg búin að ákveða öll markmiðin sem ég ætla að setja mér en eitt af þeim er að nota Duolingo-þýskuappið mitt á hverjum degi.“