Inn á vef Umhverfisstofnunnar er ekki að finna leyfi fyrir utanvegaakstrinum en samkvæmt Aðalbjörgu Birnu Guttormsdóttur, teymisstjóra Umhverfisstofnunnar, var einungis sótt um leyfi frá Mýrdalshreppi, sem hafi gefið grænt ljós.
Aðalbjörg bendir hins vegar á að leyfi til utanvegaaksturs vegna kvikmyndagerðar falli undir náttúruverndarlög og því beri að sækja um slíkt leyfi hjá stofnunninni sjálfri en ekki hjá hreppnum.
Pegasus sá um kvikmyndun þáttanna ásamt erlendu tökuliði og hyggst Aðalbjörg jafnvel munu boða þá á fund í þeim tilgangi að kynna þeim fyrir því hvernig beri að hátta málum sem þessum. Áhættumeta þurfi svona framkvæmdir og því skipti máli að setja skilyrði til að koma í veg fyrir mengunarslys svo fátt eitt sé nefnt.