„Við höfum í meginatriðum náð saman og drög að samningi eru klár,“ segir Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness. „Hins vegar þarf ríkið að liðka til fyrir samningsgerðinni um að veita sjómönnum skattfrjálsa dagpeninga eins og allar aðrar stéttir búa við. Við erum ekki að biðja um neina ölmusu. Þetta er réttlætismál.“

„Sjómenn búa við nákvæmlega sömu kjör og aðrar stéttir. Þær kröfur sem þeir gera til hins opinbera eru því sérmeðferð,“ segir Indriði. „Og það er ljótur leikur SFS að benda á ríkið í þeim efnum, það verður bara að segjast.“
Forystumenn sjómanna og SFS mættu til fundar við sjávarútvegsráðherra í fyrradag. Þar kom skýrt fram að ekki yrðu gerðar neinar lagabreytingar til að liðka fyrir samningum og að sjómenn myndu ekki fá neina sérmeðferð stjórnvalda. Því slitnaði upp úr viðræðum og enn hefur ekki verið boðað til nýs fundar. „Ég hef komið fram með þá tillögu að við skoðum þessi mál heildstætt og held áfram að leita að lausnum. Það er hins vegar ljóst að það er á ábyrgð deiluaðila að samningar náist,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir sjávarútvegsráðherra.

„Það er ekki hægt að leggja fram miðlunartillögu þegar ágreiningsefni snýr að þriðja aðila sem á ekki sæti við samningaborðið,“ segir Bryndís Hlöðversdóttir.
Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu