„Finnst þér að ég eigi að koma með sértækar aðgerðir, og eins og sumir eru að leggja til, að niðurgreiða laun fyrir útgerðarmenn? Ég er því mótfallin,“ sagði Þorgerður.
Hún sagði að þeir sem hafa einkarétt á auðlind þjóðarinnar verði að axla þá ábyrgð og ná samningum.
Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, segir á Facebook að þessi ummæli Þorgerðar Katrínar þýði það að ekkert verður af nýjum kjarasamningi sjómanna við Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi því hann hafi verið háður þeim ófrávíkjanlegu skilyrðum að sjómenn myndu njóta dagpeninga eins og annað launafólk í þessu landi.
Samninganefnd Sjómannasambands Íslands gerði SFS tilboð í gær sem samninganefndin sagði að væri lokatilboð þeirra í kjaradeilunni. Vilhjálmur upplýsir á Facebook að í þessu tilboði hafi verið ófrávíkjanleg krafa að sjómenn myndu njóta dagpeninga eins og annað launafólk í þessu landi.
Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri SFS, sagði í Bítinu á Bylgjunni í morgun að þegar sjómannaafslátturinn var afnuminn árið 2009 hafi raun dagpeningar sjómanna verið að fullu skattlagðir. Heiðrún Lind sagðist ekki skilja hvers vegna aðrar stéttir í landinu geta dregið frá kostnað varðandi dagpeninga og þurfi ekki að greiða skatt af þeim, og nefndi sem dæmi opinbera starfsmenn og flugáhafnir.