SDF, sem er bandalag sýrlenskra Kúrda og Araba, hefur á undanförnum dögum náð bænum Karama, sem er sunnan megin við Efratánna og er markmiðið að ná bænum al-Tabqah og Tabqah-stíflunni vestur af Raqqa.
Íslamska ríkið hefur þurft að gefa undan víða á undanförnum mánuðum, en þrjú mismunandi bandalög berjast gegn þeim í Sýrlandi og í Írak.
Írakar reyna nú að frelsa borgina Mosul í norðurhluta Írak, en fregnir hafa borist af miklu mannfalli meðal almennra borgara í loftárásum. Baráttan hefur þó tekið nokkra mánuði þar sem vígamenn ISIS tefja og hægja á sókninni með gildrum og leyniskyttum.
Í norðurhluta Sýrlands hefur SDF tekið stór svæði af ISIS-liðum og hefur króað Raqqa af, eins og kemur fram hér að ofan. Þá sækir stjórnarher Bashar al-Assad, með stuðningi Rússa og annarra, gegn ISIS-liðum úr vestri.