Sögusvið leiksins er á þá leið að stór hópur manna og bandamanna þeirra tóku þá ákvörðun að yfirgefa stjörnuþokuna okkar, sofa í sex hundruð ár og ferðast til Andromeda stjörnuþokunnar og byggja þar heimili.
Það gengur þó ekki áfallalaust fyrir sig og Ryder fjölskyldan og hetjur Mass Effect: Andromeda þurfa að grípa inn í og reyna að bjarga málunum.
Spilarar ráða því hvort þeir spila sem Sara eða Scott Ryder og fljúga um Heleus-klasann í leit að nýju heimili.
Hvern hefði grunað að af um hundrað þúsund mönnum, Turian, Salarian, Asari og alls kyns öðrum geimverum sem fara í sex hundruð ára langt ferðalag til annarrar stjörnuþoku, sé aðeins einn einstaklingur sem sé fær um að skanna grjót, skutlast með armbönd, sækja poppkorn á milli sólkerfa, setja upp loftnet og ýmislegt annað.
Flæðið steindrepið
Við það að ferðast á milli pláneta, eitthvað sem maður gerir mikið af í leiknum, þarf maður að horfa á myndband af geimskipinu taka á loft, horfa á myndband af geimskipinu fljúga frá plánetu, velja nýtt sólkerfi, horfa á geimskipið fljúga að sólkerfinu, velja plánetuna, horfa á geimskipið fljúga að plánetunni, horfa á plánetuna í tvær til þrjár sekúndur, velja lendingarstaðinn, horfa á myndband af geimskipinu fljúga að plánetunni og svo horfa á myndband af geimskipinu lenda á plánetunni.Þetta þarf maður að gera í hvert sinn og MEA sendir mann þvers og kruss um Heleos-klasann. Bioware lagði mikið í að teikna Andromeda-stjörnuþokuna og vill örugglega sýna spilurum hvernig hún lítur út, og hún lítur vel út, en kommon. Þetta gjörsamlega steindrepur flæði leiksins. Þetta er ekki galli, heldur bara hræðileg hönnun.
(Uppfært: Bioware gaf í dag út lista yfir atriði sem plástur, sem gefinn verður út þann 6. apríl, mun laga. Meðal annars verður spilurum gert kleift að sleppa því að horfa á geimskipið fljúga um geiminn. Mörg önnur atriði verða löguð)
Svo eru tvær dyr, af mjög mörgum í öllum leiknum, sem eru sérstaklega furðulegar. Maður þarf að fara margoft í gegnum þær og einhverra hluta vegna þarf maður að halda E inni í einhverjar fjórar til fimm sekúndur, mikið lengur en á öðrum dyrum, til þess að opna þær. Að opna þær var orðið eins og að draga tennur. (Nú er ég eiginlega bara farinn að ranta)

Sum verkefnin eru mjög efnileg, en leysast svo upp í ekki neitt á skömmum tíma.
Sáttur en þreyttur
Eftir að hafa varið tæplega 70 (já mamma, ég veit) klukkustundum í Andromeda stjörnuþokunni er ég sáttur, en guð minn góður hvað þetta tók stundum á. Það væri vel hægt að skera leikinn niður og gera hann betri fyrir vikið.„Farðu þangað og sæktu þetta, farðu svo til baka og skilaðu þessu. Æi, gaurinn sem átti þetta er ekki lengur hér. Farðu því aftur til plánetu tvö og finndu gaurinn dauðan í einhverjum helli. - Mission Complete“
Í mjög svo grófum dráttum er þetta kannski fjórðungur af öllum verkefnum MEA.
Ég hef lengi verið mikill aðdáandi söguheims Mass Effect og átti tiltölulega auðvelt með að leiða hjá mér hina fjölmörgu galla sem finna má í MEA. Stundum voru gallarnir reyndar nokkuð heillandi. Þar má nefna þegar ég var að horfa á um það bil 300 kílóa Krogan á sporbraut um annan samstarfsfélaga Ryder.
Andlitshreyfingar persóna leiksins eru löngu orðnar frægar, en þær geta verið mjög slæmar. Mér finnst þó eins og það mál hafi verið blásið upp úr hófi. Já, þetta er asnalegt og jafnvel hroðvirknislegt, en það er langt frá því að ganga frá leiknum dauðum.

Það er þó bara hægt að notast við þrjá krafta í einu. Það er þó leyst að vissu leyti með kerfi sem kallast Profiles. Þannig geta spilarar stillt upp mismunandi settum af kröftum og skipt þar á milli án vandræða. Það gerir manni kleift að bregðast hratt við mismunandi aðstæðum.
Ný breidd í hönnun borða
Önnur nýjung er að nú er hægt að hoppa og rúmlega það. Ryder og félagar hans eru með þotuhreyfla á bakinu sem gerir þeim kleift að hoppa mjög hátt og svífa í loftinu í skamma stund. Þaðan er hægt að skjóta á allt sem maður sér og beita kröftum. Þessi hopp opna bardaga í MEA upp og gefa spilurum miklu fleiri möguleika til að sigra óvini sína en í fyrri leikjum seríunnar.Það sem hoppin gera einnig er að opna svæði leiksins upp og gera hönnun borða skemmtilegri. Eitt af skemmtilegri borðum leiksins gerist til dæmis um borð í geimskipi þar sem þyngdaraflið er reglulega að breytast. Eina stundina er gólfið niður og þá næstu gengur maður á veggjum.
Það er alltaf gaman að heimsækja nýjar plánetur og skoða þær. Hins vegar verður það þreytt á endanum þar sem leikurinn sendir þig fram og til baka um pláneturnar til að elta mis-spennandi verkefni. Það að ferðast um þessar fallegu plánetur verður bara að nauðsynlegri tímaeyðslu, sem er leiðinlegt, því pláneturnar eru flottar og vel hannaðar.
Ofan á það, þarf að svipta hulunni af því hver stendur á bakvið ferðalagið til Andromeda. Lagt var af stað á svipuðum tíma og Mass Effect 2 gerist, þannig að Reaper-ógnin sem stafaði af stjörnuþokunni okkar er ekki á allra vitorði.

Skipsfélagar Ryder eru, eins og í öllum ME leikjum, mis áhugaverðir. Sumir (ég er að horfa á þig Liam) eru einfaldlega hundleiðinlegir og jafnvel gagnslausir. (Af hverju ertu hérna ennþá Liam?) Aðrir eru djúpir og vel skrifaðir, en hægt er að gera ýmis verkefni fyrir þá alla til þess að öðlast hollustu þeirra. Sum þeirra verkefna eru með þeim skemmtilegustu í leiknum og önnur eru bara fyrir.
Fínn, jafnvel góður, en ætti að vera frábær
Svo maður taki aðeins saman, þá gæti Mass Effect Andromeda verið miklu skemmtilegri leikur en hann er. Hann er fínn og á köflum góður, en hann gæti verið frábær. Meira er ekki endilega betra og gífurlega mikið uppfylliefni kemur niður á upplifuninni sem nýja stjörnuþokan ætti að vera. Ekki hjálpar að leikurinn inniheldur fjölmarga galla.Bardagakerfið er að mínu viti það skemmtilegasta í allri seríunni, sagan er áhugaverð og leikurinn lítur mjög vel út.
Aðdáendur Mass Effect seríunnar munu líklega ekki láta þennan fram hjá sér fara, en mér þykir miður að þetta gætu verið fyrstu kynni margra af þeim frábæra söguheimi sem Bioware hefur skapað.