Breska krúnan fer fram á 1,5 milljóna evra skaðabætur, andvirði rúmlega 174 milljóna íslenskra króna, vegna brjóstamynda af hertogaynjunni af Cambridge, Kate Middleton.
Myndirnar birtust í frönskum glanstímaritum 2012. Myndirnar voru teknar úr leyni þar sem Vilhjálmur Bretaprins og Katrín slökuðu á á strönd í Frakklandi en þar var hún ber að ofan. Hluti myndasafnsins var ekki birtur í tímaritunum en komst síðar í dreifingu. Þar sést hvar prinsinn smyr sólarvörn á þjóhnappa eiginkonu sinnar. Myndirnar settu sálarlíf bresku þjóðarinnar á hliðina.
Fyrir frönskum dómstólum er nú mál þar sem ritstjórum blaðanna auk ljósmyndaranna er gefið að sök að hafa rofið friðhelgi einkalífs kóngafólksins. Bótakrafan er tilkomin vegna þess skaða sem myndbirtingin olli.
Lögbann var lagt á birtingu myndanna en dugði skammt. Skömmu síðar var þær að finna á vefsíðum í Norðurlöndunum, Ítalíu og í Bretlandi. Helsta málsvörnin felst í því að myndirnar sýni Vilhjálm og Katrínu í áður óséðu ljósi sem sé síst til þess fallið að valda þeim ama. Ljósmyndararnir neita því að hafa smellt af þrátt fyrir að greiðslur til þeirra beri vott um annað.
Krúnan vill bætur fyrir brjóst Katrínar

Tengdar fréttir

Ljósmyndari og útgefandi ákærðir vegna nektarmynda af Kate
Franskur ljósmyndari og útgefandi franska tímaritsins Closer, hafa verið ákærðir fyrir að taka og birta myndir af hertogaynjunni Kate Middleton í Frakklandi í september á síðasta ári.

Myndin sem er að gera allt brjálað
Bandaríska slúðurblaðið Star birtir mynd af óléttri Kate Middleton í bikiníi á forsíðu nýjasta heftis blaðsins. Myndin var tekin af hertogynjunni er hún fór í frí með Vilhjálmi prins á eyjunni Mustique.

Bikinímyndir af prinsessu sagðar smekklegar
Ritstjóri ítalsks slúðurtímarits segir bikinímyndir af Kate Middleton sárasaklausar.

Katrín ætlar að hlusta á OMAM þegar hún fæðir
Katrín hertogaynja af Cambridge ætlar að hlusta á Of Monstes and Men þegar hún fæðir barn sitt.