Næsta Lisbeth Salander? Ritstjórn skrifar 29. maí 2017 11:00 Glamour/Getty
Breska leikkonan Claire Foy, sem flestir þekkja úr sjónvarpsþáttunum The Crown þar sem hún fer vel með hlutverk Bretlandsdrottningar, ku vera í viðræðum um að leika tölvuhakkarann fræga Listbeth Salander í næstu mynd byggðri á metsölubók David Lagerkrantz. Bókin er sjálfstætt framhald af metsöluseríu Stieg Larsson. Myndin er „The Girl in the Spider´s web“ og er Foy efst á óskalista Sony fyrir leikkonur til að taka að sér hlutverkið. Þá fetar hún í fótspor Noomi Rapace og Rooney Mara, sem báðar hlutu lof fyrir leik sinn í myndum byggðum á bókunum. Foy er þessa stundina að klára að leika í annarri seríu The Crown og er einnig í viðræðum við leikstjórann Damien Chazelle, sem leikstýrði La la Land, um hlutverk í hans næstu mynd, First Man þar sem Ryan Gosling bregður sér í hlutverk Neil Armstrong. Noomi Rapace og Mikael Nyqvist í hlutverkum sínum í sænsku myndinni byggðum á metsölubókum David Lagerkrantz.
Mest lesið Beyoncé sem Nala í endurgerð Lion King Glamour Kim Kardashian fetar nýjar slóðir Glamour „Það er til ógrynni af hæfileikalausum listamönnum sem verða til með þessu internetlýðræði“ Glamour Rokkuð rómantík hjá Heard Glamour 10 ómissandi snyrtivörur fyrir Airwaves Glamour Beyonce er með leynilegan Snapchat aðgang Glamour Við erum bara NOCCO góð Glamour Systurnar Bella og Gigi Hadid saman í Chanel Glamour Eftirminnilegir kjólar árið 2017 Glamour Óskarinn 2017: Stjörnurnar skemmtu sér í eftirpartýi Glamour