Hliðarvatns dagurinn sunnudaginn 11.júní Karl Lúðvíksson skrifar 10. júní 2017 14:00
Hlíðarvatn er eitt af vinsælustu bleikjuvötnum suðurlands og þangað sækja margir fyrstu reynsluna af vatnaveiði. Á hverju ári bjóða veiðifélögin sem tengjast vatinu þeim sem hafa áhuga á að kynnast þessu frábæra veiðivatni frítt að veiða og við bakkann verða margir af reynsluboltunum við vatnið sem fara yfir það sem nauðsynlegt er að vita þegar haldið er til veiða í vatninu. Í tilkynningu frá Ármönnum segir meðal annars: "Ármenn ætla að bjóða upp á grillaðar pylsur og nýbakaðar pönnukökur í Hlíðarseli og auðvitað verður heitt á könnunni og eflaust nægar veiði- og blíðviðrissögur á takteinum. Ef þannig viðrar verða einhverjar þrautir uppsettar þannig að gestir geta spreytt sig á hittni- og lengdarköstum með flugu og hver veit nema hægt verði að fá smá ráðleggingar reyndra Hlíðarvatnsmanna sem verða á staðnum.Gestum verður heimil veiði í vatninu án endurgjalds frá morgni og fram undir kl.18 Veiðimenn eru hvattir til að skrá afla hjá einhverju veiðifélaganna áður en haldið er heim í lok dags.Veiðifélögin sem standa að Hlíðarvatnsdeginum eru; Stangaveiðifélagið Stakkavík, Stangaveiðifélag Hafnarfjarðar, Stangaveiðifélag Selfoss, Ármenn og Stangaveiðifélagið Árblik. Veiðihús þessara félaga verða vel mönnuð frá morgni til kvölds, kaffi á könnunni og nægar tröllasögur til áheyrnar". Athygli er vakin á að maí og júní eru uppseldir hjá Ármönnum, en eitthvað laust af leyfum í júlí, ágúst og september. Lausar stangir má finna á leyfi.is
Mest lesið 112 sentimetra stórlax úr Vatnsdalsá Veiði Þingvallavatn undir yfirborðinu - töfraveröld Veiði Framleiða sjónvarpsþætti um sportveiði Veiði 8408 laxar komnir úr Ytri Rangá Veiði Túnin víða svört af gæs Veiði Gæsaveiðin gengur vel um allt land Veiði Ytri Rangá komin í 409 laxa Veiði Veiði sumarsins á hátíðarborðið Veiði Fleiri net á land í Ölfusá Veiði Góð veiði á Skagaheiði Veiði