Guðni Th. Jóhannesson forseti sendi í morgun samúðarkveðju sína og íslensku þjóðarinnar til Elísabetar II Bretadrottningar vegna hryðjuverksins sem framið var í Lundúnum í gærkvöldi.
Í tilkynningu frá skrifstofu forseta segir að í kveðjunni segi forseti meðal annars að enn á ný liggi saklausir borgarar í valnum eftir ódæði öfgamanna.
„Íslendingar samhryggist af öllu hjarta þeim sem nú sakna látinna ástvina og óski þeim sem liggja særðir á sjúkrahúsum eftir árásina góðs bata. Um leið vottum við öllum þeim sem komu til bjargar á ógnarstundu aðdáun okkar og virðingu.
Hryðjuverk væru ógn við frjáls og opin lýðræðissamfélög og brýnt að þjóðir heims stæðu saman og ynnu að því með öllum tiltækum ráðum að frjálsum, friðelskandi borgurum stafi ekki stöðug ógn af grimmdarverkum öfgamanna,“ segir í tilkynningunni frá forsetaembættinu.
Guðni sendir samúðarkveðju til Breta

Tengdar fréttir

Í beinni: Hryðjuverkaárás á London Bridge og Borough Market
Sendiferðabíl var ekið á gangandi vegfarendur á London Bridge í gærkvöldi. Sjö hið minnsta eru látnir og tugir særðir.

May vill endurskoða hryðjuverkalöggjöfina
Theresa May segir lögregluyfirvöld hafi komið í veg fyrir fimm hryðjuverkaárásir í landinu frá árásinni á Westminster-brúnni í mars.

Sex látnir og árásarmennirnir skotnir til bana í hryðjuverkaárás í London
Sex eru látnir og fjölmargir eru særðir eftir að hryðjuverkaárás var framin í London rétt eftir klukkan tíu að staðartíma í gærkvöldi. Þrír meintir árásarmenn voru skotnir til baka af lögreglu.