Veiði

Veiði hefst í Veiðivötnum 18.júní

Karl Lúðvíksson skrifar
Björn með flotta urriða úr Skalavatni í fyrra
Björn með flotta urriða úr Skalavatni í fyrra Mynd: Bryndís Magnúsdóttir
Veiðivötn er líklega eitt vinsælasta silungsveiðisvæði landsins en þangað mætir mikill fjölda veiðimanna á hverju sumri til að veiða í einhverri fallegustu umgjörð sem nokkurt veiðisvæði getur fengið.

Veiði hefst í Veiðivötnum 18.júní og samkvæmt upplýsingum af heimasíðu vatnana eru laus leyfi í vötnin nokkur og eins er ennþá laust í nokkur gistipláss en það hefur verið ansi umsetið að komast að í gistingu á hverju sumri við vötnin.  Veiðin í fyrra var 27.444 fiskar og á heimasíðu Veiðivatna má sjá hvernig veiðin dreifðist um vötnin en Snjóölduvatn, Litli Sjór og Hraunsvötn eru alltaf gjöful og meðal þeirra vatna sem gáfu mesta veiði í fyrra en vötnin eru mörg og veiðin mjög góð í flestum þeirra.

Það sem gerir heimsókn í Veiðivötn svo spennandi er að það er hægt að fara á milli vatna og gera þá sérstaklega út á bleikju eða urriða, fara í vötn þar sem veiðin er ekki endilega mikil en fiskurinn stór og þar má kannski helst nefna Grænavatn en Hraunsvötn gefa þó líka ansi stóra fiska.  Fluguveiði er að verða sífellt vinsælli og er svo komið að margir mæta eingöngu með flugu upp í vötn.  Það verður spennandi að sjá hvernig vötnin opna um komandi helgi og við komum til með að fylgjast vel með þeirri opnun.










×