Ríkra manna íþróttin fótbolti Benedikt Bóas skrifar 11. júlí 2017 07:00 Fótbolti er í grunninn verkamannaíþrótt en eins og allir vita þá er það orðin íþrótt fyrir ríka kalla að leika sér. Enski boltinn er auðvitað sérkapítuli en það eru teikn á lofti að íslenska deildin sé að verða sófasport líka. Stjórnir margra félaga eru uppfullar af viðskiptamógúlum sem hugsa um lítið annað en að græða peninga, með öllum tiltækum ráðum. Utan um stjórnir fótboltans eru svo regnhlífarsamtökin Íslenskur toppfótbolti sem ákváðu fyrir tímabilið að hækka miðaverð. Sú ákvörðun hefur farið öfugt í íslenska stuðningsmenn sem sitja frekar heima og mæta ekki á völlinn. Í níundu umferð var aðeins einn leikur þar sem áhorfendur voru fleiri en þúsund. Í umferðinni þar á undan voru þeir tveir. Samt eru lestrartölur vefmiðla um leikina mjög háar. Áhuginn er mikill á deildunum en það skilar sér ekki í hærri áhorfendatölum. Hvert sem farið er um Evrópu þá er eitthvað gert til að laða fólk á völlinn. Hér á Fróni er tónlist blastað á fullu þangað til leikur hefst. Í hálfleik er síðan aftur hækkað. Það er það íslenskasta sem ég veit. Og nú segi ég eins og gamla fólkið: Hvers vegna þarf þetta að vera svona hátt. Það heyrist ekki mannsins mál. Ekkert annað er gert. Sumir grilla reyndar hamborgara. Eru þjálfarar eða aðstoðarmenn þeirra að gera eitthvað fyrir dygga stuðningsmenn? Svona eins og landsliðsþjálfarinn gerði til að peppa áhorfendur fyrir landsleiki og gerir enn? Neibbs. Það er ekkert gert. Íslenskur toppfótbolti má skammast sín og ég vona að þeir lækki miðaverð þannig að heilar fjölskyldur geti farið á völlinn. Annars endar þetta illa og sumarið 2017 verður knattspyrnunni til skammar. Það er nefnilega varla hræða á vellinum. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Benedikt Bóas Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Ábyrgð yfirvalda á innra mati á skólastarfi Anna Greta Ólafsdóttir Skoðun Styrkleikar barna geta legið í öðru en að fá hæstu einkunnir Anna Maria Jónsdóttir Skoðun Bjánarnir úti á landi Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson Skoðun Listin við að fara sér hægt Heiðrún Lind Marteinsdóttir Skoðun Ef þetta eru hægriöfgaskoðanir, þá er ég stoltur hægriöfgamaður Davíð Bergmann Skoðun Heimsmet í sjálfhverfu Friðrik Þór Friðriksson Skoðun Kosningar í stjórn Visku: Þitt atkvæði skiptir máli! Eydís Inga Valsdóttir Skoðun Betri nýting á tíma og fjármunum Reykjavíkurborgar 1/3 Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Hvað kostar EES samningurinn þjóðina? Sigurbjörn Svavarsson Skoðun Tölum um endurhæfingu! Laufey Elísabet Gissurardóttir,Steinunn Bergmann,Þóra Leósdóttir Skoðun