
„Sport í bland við „business bitch“ væri góð leið til að lýsa tískunni í haust og vetur. Svokallaðir „track suits“ verða áberandi, stórar dúnúlpur í anda Vetements og Balenciaga og dragtir í öllum útgáfum verða vinsælar,“ segir Stella.
Hún segir smart að vera ýmist í strigaskóm eða pinnahælum við dragt.
„Strigaskór eru hvergi nærri dottnir úr tísku og verða sterkari sem aldrei fyrr í vetur.“„Fyrir þá sem vilja vera ögn meira áberandi eru litaðir feldir, jakkar úr pvc-efni og glimmerskór að koma mjög sterkt inn. Í mynstrum eru köflótt, dökk blómamynstur og hlébarðamynstur þau mest áberandi,“ segir Stella.

„Klassíska alpahúfan er einnig komin aftur eftir langa pásu.“Spurð út í vinsæla liti segir Stella:
„Rautt er klárlega allsráðandi þetta misseri. Aðrir áberandi litir eru appelsínugulur og kóngablár.“
En hvað er að detta úr tísku?
„Gallabuxnatískan er að breytast töluvert. Innvíðar gallabuxur eru hægt og rólega að detta út og víðar gallabuxur að taka við. Choker-hálsmen eru einnig farin að sjást mun minna og eru látlausar keðjur orðnar hið nýja „go to“-hálsmen.

„Dragt sem hægt er að klæða upp og niður og góð dúnúlpu.“