Fundurinn er í beinni útsendingu á Vísi en hávær krafa hefur verið meðal annarra nefndarmanna þess efnis að Brynjar myndi víkja úr formannssætinu á meðan nefndin fjallaði um mál er tengdust uppreist æru.
Meirihluti nefndarinnar komst að þeirri niðurstöðu í upphafi fundar nefndarinnar í morgun að Jón Steindór, þingmaður Viðreisnar, yrði kjörinn formaður nefndarinnar og Svandís Svavarsdóttir, þingmaður VG, fyrsti varaformaður. Áður var Brynjar formaður og Jón Steindór varaformaður.
Brynjar hefur í tengslum við mál er varða uppreist æru lagt áherslu á að einstök mál yrðu ekki rædd og upplýsingar ekki birtar. Þetta er fyrsta afleiðing stjórnarslitanna á nefndir Alþingis.
Fram hefur komið að Brynjar þekkti Robert Downey, dæmdan kynferðisbrotamann sem fengið hefur uppreist æru, og þá var Brynjar verjandi annars kynferðisbrotamanns sem fékk uppreist æru. Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd fékk gögn í máli Robert Downey til skoðunar en þingmenn meirihlutans í nefndinni kusu að skoða ekki gögnin á fundi nefndarinnar.
Þá hafði Brynjar útilokað að rannsókn færi fram á starfsháttum forsætisráðherra og dómsmálaráðherra sem þingflokkur Viðreisnar hafði farið fram á.
Ekki náðist í Brynjar við vinnslu fréttarinnar en hér að neðan má heyra viðtal við Brynjar úr Harmageddon í morgun.
Fréttin hefur verið uppfærð.