Ísland er í aðalhlutverki í línunni, en innblásturinn var fengin frá Íslandi, náttúrunni, hefðum okkar og litum. Það er ansi magnað að jólin á alþjóðavísu hjá Ikea séu um okkar litla Ísland. Þrír íslenskir hönnuðir hafa einnig hannað hluti í línunni, sem við erum auðvitað ansi stoltar af. Guðrún Lilja hannaði kaffikönnu, Þórunn Árnadóttir hannaði kerti og aðra smáhluti, og Jón Helgi Hólmgeirsson hannaði ljós fyrir línuna.
Línan er stílhrein í heild sinni, og aðal-litir línunnar eru svartur, grár og hvítur. Rauði liturinn er þó alltaf stil staðar. Hlutirnir eru margir hverjir grófir. Ikea kallar línuna vetrarlínu, svo hún geti lifað lengur á heimilunum yfir vetrartímann, sem er ansi sniðugt. Einnig eru margir hlutir sem hugsaðir eru fyrir gamlárspartíið, eins og kampavínsglös og annað skraut.
Ertu þá komin í jólaskap? Það er aldrei of snemmt að byrja að undirbúa jólin. Eða það segir Ikea allavega.






