,,Sköpunargáfuna er hægt að nýta í margt, og hægt er að fara í margar aðrar áttir en að nota loð," segir Marco Bizzarri, forseti Kering samsteypunnar, sem á Gucci.
Samkvæmt tískuhúsinu er alvöru loð einfaldlega ekki lengur í tísku og að margt fólk hafi ekki löngun í að kaupa alvöru loðfeld lengur. Munu þeir skipta loðfeldinum út fyrir gerviloð, ullarefni og önnur efni sem verið er að þróa.
Gucci fetar í fótspor fyrirtækja eins og Calvin Klein, Ralph Lauren, Stella McCartney og Armani, sem öll eru loð-laus, ef svo má að orði komast.
Vonandi að önnur tískuhús fari að tileinka sér þessa stefnu.
