- Ekki vera á sama stað of lengi, ágætis viðmið er að telja upp á 30 og skipta svo um stað.
- Snertingin má ekki vera of hörð eða of mjúk, reyndu að hafa hinn gullna meðalveg í huga.
- Ef þú vilt vera extra metnaðargjarn/gjörn skaltu nota báðar hendur.
- Besta staðsetning á gilli er að margra mati hnakkadrambið!
- Það er mjög mikilvægt að hafa hugann við verknaðinn, ekki vera í símanum eða tölvunni. Láttu þann sem verið er að gilla finna að þú sért að vanda þig.
- Vertu óhrædd/ur við að fara aðeins út fyrir rammann og prófa nýja staði líkt og andlit, hendur og fætur.
- Gefðu þér góðan tíma í gillið, það er fátt meira pirrandi en að fá örstutt gill – þá getur þú alveg eins sleppt því.
- Til er nokkurskonar gill kló sem hægt að er að notast við ef þú ert í vandræðum
