Hún lauk nýverið við tökur á þriðju myndinni í seríunni, Fifty Shades Free, sem kemur í kvikmyndahús í febrúar á næsta ári, en nú ætlum við að einbeita okkur að fatastíl leikkonunnar.

Fín í flauel
Byrjum á kjólnum. Um er að ræða síðan, svartan flaueliskjól, en flauel er vinsælt efni um þessar mundir.Hægt er að fá svipaðan kjól og Dakota klæðist í Zöru. Sniðið er fallegt og klæðilegt og passar kjóllinn bæði hversdags og þegar á að gera sér glaðan dag.

Flottur jakki
Hægt er að fá þennan brúna gervifeld í H&M en hann er ansi svipaður jakkanum sem Dakota klæðist á myndinni hér fyrir ofan.Svo er ekki verra að jakkinn er hlýr, enda farið að kólna vel hér á landi.

Skórnir skapa konuna
Dakota velur þunga skó við vetrarfatnaðinn sinn, sem er alls ekki svo galið.Hjá Skór.is er hægt að fá keimlíka skó, en undirritaðri finnst þeir bæði töffaralegir og flottir - sérstaklega paraðir við gervifeld og flauelskjól.

Fer ei langt án fylgihluta
Dakota fullkomnar svo lúkkið með doppóttum sokkabuxum, dökkum sólgleraugum og fallegum hringum á fingrum.Hægt er að fá svipaðar nælon sokkabuxur í H&M en hringana fundum við á vefsíðunni velvet.is.
Sólgleraugun fást síðan hjá Suitup Reykjavík.
Hér fyrir neðan má sjá fyrstu stikluna úr myndinni Fifty Shades Free.