Í tilkynningu frá Sessions, sem sagt er frá á vef Reuters, segir ráðherrann að Alríkislögregla Bandaríkjanna (FBI) og Skrifstofa áfengis, tóbaks, skotvopna og sprengiefna (ATF) myndu gera ítarlega skýrslu um kerfið sem notað er til bakgrunnskannana. Starfsmenn stofnanna myndu svo leggja til hvernig hægt væri að tryggja að þeir sem megi ekki kaupa byssur geti ekki gert það.

Flugherinn gerði hins vegar mistök og kom dómi Kelley ekki inn í umræddan gagnagrunn sem FBI heldur utan um.
Dylann Roof, sem myrti níu manns í kirkju í Charleston fyrir tveimur árum, gat keypt byssuna sem hann notaði í fjöldamorðinu, vegna mistaka FBI og lögreglu sem leiddu til þess að nafn hans hafði ekki verið skráð í umræddan gagnagrunn.
Washington Post sagði einnig frá því í gær að tugir þúsunda manna sem búið væri að gefa út handtökuskipun gagnvart duttu af lista yfirvalda yfir aðila sem mega ekki kaupa byssur. Það var gert eftir að FBI breytti skilgreiningu sinni yfir einstaklinga á „flótta frá yfirvöldum“ fyrr á árinu.
Sú skilgreining nær nú eingöngu yfir aðila sem hafa flúið á milli ríkja í Bandaríkjunum. Það þýðir að aðilar sem eru í felum frá lögreglu en hafa ekki ferðast á milli ríkja, geta þrátt fyrir það keypt byssur.