Kraftlyftingakonan Hulda B. Waage er alltaf með hnetusteik á jólunum. Í henni er ýmislegt jólakrydd sem gerir hana hátíðlega. Hún segir best að gera hana nokkrum dögum fyrir jól, þá sé hún best.
Hulda B. Waage gerðist vegan á unglingsárum. Um tíma borðaði hún líka fisk en fyrir tæpum fjórum árum snéri hún sér alfarið að veganisma. Hulda hefur alltaf haft gaman af því að elda en hún starfar sem matreiðslumaður í mötuneyti Íslandsbanka á Akureyri.
„Í upphafi fannst mér einfaldlega meira spennandi að elda grænmetisrétti en í seinni tíð er ég farin að hugsa meira út í hugmyndafræðina að baki því að sleppa dýrum og dýraafurðum. Heilt yfir finnst mér mun einfaldara að elda vegan en annað.
Hulda tilheyrir landsliðinu í kraftlyftingum og hefur bæði hampað Íslandsmeistara- og bikarmeistaratitlum. Hún fær oft þá spurningu hvort hægt sé að byggja upp vöðva ef maður er vegan.
„Margir halda að það sé samasemmerki á milli neyslu dýrapróteina og vöðvauppbyggingar en það er mikill misskilningur. Þú þarft ekki að borða vöðva til að fá vöðva og þeir sem einblína eingöngu á prótein eru á miklum villigötum. Það þarf að hugsa hlutina í víðara samhengi; hreyfa sig, næra sig vel og sofa,“ segir Hulda, en sjálf borðar hún mikið af grænmeti, ávöxtum, baunum, tófú og kornmeti.
Hulda er alltaf með hnetusteik á jólunum. Í hana setur hún kanil, negul og engifer til að hún verði sem jólalegust á bragðið.
„Lengi vel var ég með heita sósu og waldorfsalat með en í seinni tíð hef ég reynt að létta meðlætið enda nóg af þungum mat í kringum jólin.“ Hnetusteikina gerir Hulda viku fyrir jól og geymir í frysti. „Þá þarf ég lítið að standa í eldhúsinu á aðfangadag og get notið þess að slaka á með fjölskyldunni en auk þess bragðast hún betur upphituð.“ Hulda hefur líka tekið að sér að gera steikina fyrir aðra og notar ágóðann í keppnissjóð. Hún er með opinn snapchatreikning undir nafninu Bwaagepower þar sem hún sýnir frá æfingum, matargerð og ýmsu fleiru.
Hún gefur hér uppskrift að jólamatnum á hennar heimili.

Hnetusteik
- 1 meðalstór sæt kartafla
- 1 laukur
- 1/2 fennel
- 1 hvítlauksrif
- ½ dl bygg
- 1 ½ dl vatn
- 300 g hnetur
- 2 msk maukaðar sólþurrkaðir tómatar
- 2 tsk negull
- 1 tsk engifer
- 1 tsk cumin
- ½ tsk kanill
- 2 tsk salt
- 1 tsk maple síróp
- 1 tsk olía
Sjóðið bygg í söltu vatni í 45 mínútur.
Skerið sæta kartöflu í nokkra bita, lauk í fernt og fennel til helminga. Dreifið á ofnplötu ásamt hvítlauksrifi. Kryddið og dreifið ólíu og Maple sýrópi yfir. Bakið við 165 gráður í 45 mínútur.
Þegar byggið er soðið og grænmetið vel bakað er það sett saman í skál. Bætið tómatmauki samanvið.
Ristið hnetur að eigin vali (mæli með pecanhnetum og valhnetum) og grófmalið í matvinnsluvél. Bætið þeim út í skálina og hnoðið með höndunum (má líka hræra í hrærivél).
Smakkið til með salti, sætu og krydd. Mótið steikina eins og ykkur lystir og bakið við 160°c í 25mín. Hana má frysta, þýða og hita að vild.
Salvíu majó
- ½ dl sojamjólk
- 1 tsk hrísgrjónaedik
- 1 dl bragðlaus olía
- ½ tsk maple sýróp
- 1 tsk salt
- 1/8 tsk cayenne pipar
- 1 msk smátt söxuð fersk salvía
- 1/2 hvítlauksrif
Hellið sojamjólk og ediki í ílangt glas. Maukið með töfrasprota. Hellið olíu í mjórri buni út í glasið á meðan sprotinn er í gangi. Úr verður bragðlaust majones. Bætið kryddinu við. Smakkið til með salti, sætu og cayenne pipar (Eins er hægt að kaupa tilbúið vegan majones. Þá má gera stærri uppskrift í blandara).

Rauðrófu og eplasalat
- 1 rauðrófa
- 1 grænt epli
- nokkur grænkálslauf
- 1 msk olía
- 1 tsk maple sýróp
- 1 lime
Skerið rauðrófu í bita eða sneiðar. Skerið epli í litla teninga. Rífið kálið af stilkunum og saxið. Bætið olíu maple sýrópi og safa ár lime saman við og hellið í skál.

Eftiréttur
- 1 banani og nokkur jarðaber.
- 1 dós kókósmjólk (köld)
- 1 msk maple síróp
- 1 tsk vanilludropar
- Oatly vanillusósa
- PB2 (hnetuduft)
Kælið kókosmjólkina yfir nótt. Setjið þykka hlutann af kókosmjólkinni í ískalda skál ásamt maple sýrópi og vanillu. Þeytið vel í að minnsta kosti fimm mínútur eða þar til rjóminn er orðinn vel þéttur. Geymið í ísskáp. Sneiðið bananann og skerið jarðarberin í fernt. Setjið jarðarber í botninn á háu glasi, næst kókosrjóma, þá banana, svo vanillusósu, aftur banana og að síðustu jarðarber. Toppið með rjóma og vanillusósu. Stráið PB2 yfir.