Er rauðvín raunverulega grennandi? Lára G. Sigurðardóttir skrifar 4. janúar 2018 09:30 Lára G. Sigurðardóttir, læknir og doktor í lýðheilsuvísindum.
Le sendum Vísis og Fréttablaðsins gefst kostur á því að senda sérfræðingum spurningar tengdar heilsu og lífsstíl á netfangið [email protected]. Í hverri viku birtast svör við völdum spurningum í Fréttablaðinu og hér á Vísi. Spurning: Er rauðvín raunverulega grennandi? Svar: Sagan um að rauðvín sé grennandi blossar af og til upp á netmiðlum. Rökstuðningurinn er á þá leið að efnið resveratról sem finnst í rauðvíni breyti ljósri fitu (venjulegri fitu) í „ljósbrúna fitu“ sem brennir hitaeiningum. Sýnt hefur verið fram á að mýs sem innbyrða resveratról geta grennst. Ekki er hægt að heimfæra þessar niðurstöður á mannfólkið því líkami okkar umbreytir resveratróli að mestu leyti áður en það berst í blóðrásina og getur því ekki nýtt sér það nema í litlu magni. Það eru því takmarkaðar vísbendingar um að maðurinn geti nýtt sér þetta virka efni til fitubrennslu á sama hátt og mýs. Rétt er að resveratról finnst að einhverju leyti í rauðvíni en það síast að mestu leyti burt í framleiðsluferli vínsins. Ávextir innihalda pólýfenól sem er samheiti yfir resveratról og önnur efni sem hafa svipaða virkni. Því er hægt að fá ríkulegt magn af slíkum efnum með því að borða vel af ávöxtum og grænmeti. Þar að auki innihalda vínber, bláber og hindber mun meira magn af slíkum efnum en rauðvín. Fullyrðingin um að rauðvín gagnist til að grennast er því afar ósennileg. Þvert á móti getur rauðvín stuðlað að þyngdaraukningu vegna þess að allt áfengi er mjög hitaeiningaríkt og neysla þess eykur matarlyst. Ekki má heldur gleyma að allt áfengi eykur hættu á krabbameini í níu líffærum, þar á meðal í brjóstum, eggjastokkum, ristli, hálsi, vélinda og maga.Niðurstaða: Það er ekkert sem styður það að rauðvín geti haft grennandi áhrif og hollara er að fá pólýfenól efni með neyslu ávaxta og berja.
Heilsa Mest lesið Sjóræningjar réðust á Íslendinga Lífið Laufey sendir lekamönnum tóninn Lífið Seldu húsið í stað þess að taka á sig hærri vexti og flytja til Asíu Lífið „Ef þú ræðst svona aftur á mig þá stíg ég á fótinn þinn“ Lífið Þetta er ástæðan fyrir því að þú átt aldrei að bjóða óperusöngvara í matarboð Gagnrýni „Áttum mörg falleg móment þar sem við töluðum um framtíðina“ Makamál „Þessi krakki mun aldrei hlaupa á eftir bolta“ Lífið Mikilvægt að á Íslandi sé framleitt úr íslenskri ull Lífið Fréttatía vikunnar: Ungfrú Ísland, eldgos og Þjóðhátíðarlagið Lífið Morð og meiri missir: „Ég hélt henni í fanginu og sagði að allt yrði í lagi“ Áskorun