Autoblog á Happy Camper um Ísland Finnur Thorlacius skrifar 3. janúar 2018 11:19 Brunandi á Happy Camper um þjóðvegi landsins.
Bílavefurinn Autoblog gerði sér ferð hingað til lands í haust til að upplýsa lesendur sína um hvernig er að ferðast á húsbíl um landið fagra. Þeir leigðu sér húsbíl frá Happy Camper og sögðu það kjörna leið til að spara í hótelkostnaði. Í för voru einungis tveir starfsmenn hins ágæta bílavefjar, enda tæplega pláss fyrir fleiri hvað svefnrými varðar í bílnum. Þeir virtust, líkt og flestir, mjög hrifnir af fegurð landsins og þó svo að bíllinn sem þeir leigðu hafi bilað svo rækilega að koma hafi þurft með annan bíl þá voru þeir þó staddir við Skógafoss og létu þau orð falla að vart væri hægt að verða fyrir svona bilun á fegurri stað. Eftir för sína um suðurhluta landsins komust þeir Autoblog menn að því að enn betra væri að njóta ferðalagsins um Ísland á skemmtilegra ökutæki og í hógværð sinni nefndu beinskiptan Volkswagen Golf sem góðan kost. Þar á eftir kæmi svo minni og ökuhæfari húsbíll en sá Renault Trafic bíll sem þeir höfðu til afnota frá Happy Camper. Sjá má hluta af upplifun tvímenninganna á Íslandi í myndskeiðinu hér að neðan.
Mest lesið Frans páfi er látinn Erlent Vanþekking ráðherra sé áhyggjuefni Innlent Vildu ekki til Íslands þegar loks bauðst að snúa heim Innlent Ásthildur Lóa setur húsið umdeilda á sölu Innlent Deildi hernaðarupplýsingum í öðru spjalli með konu sinni og bróður Erlent Gripu innbrotsþjófa glóðvolga Innlent Hátt í þrettán stiga hiti á sumardaginn fyrsta Innlent Loftvarnarsírenur óma á ný eftir skammvinnt „vopnahlé“ Erlent Margar fjölskyldur fastar í fátækt svo árum skiptir Innlent Ræddi við foreldra og hætta við miklar hækkanir Innlent