Niðurstöðurnar sýna að 47 prósent þeirra sem taka afstöðu telja spítalann ekki eiga að rísa á núverandi stað við Hringbraut.

„Það var ekki allt óumdeilt í því deiliskipulagi en það varð þverpólitísk sátt um staðsetninguna, þó svo hafi ekki verið í upphafi umræðunnar,“ segir Dagur.
„Í fyrsta lagi þá er nauðsynlegt að velja framtíðarstaðsetningu fyrir spítalann og fara í staðarvalsgreiningu sem fyrst um framtíðaruppbyggingu Landspítalans,“ segir Eyþór Arnalds, oddviti framboðslista Sjálfstæðisflokksins fyrir komandi borgarstjórnarkosningar.
Eyþór segir staðsetningu spítalans í dag hafa ákveðna galla, bæði hvað varðar rými og samgöngur. Hún hafi upphaflega verið í útjaðri er borgin var miklu minni en í dag.
„Til framtíðar eigum við að stefna á að bæði stofnanir og fyrirtæki séu líka austarlega í borginni. Það er betri og heilbrigðari þróun sem léttir á samgöngukerfinu og styttir ferðatíma fyrir okkur,“ segir Eyþór.
Aðspurður segir Eyþór mikilvægt að tefja ekki framkvæmdir sem þegar séu á framkvæmdastigi.
„En umferðarlega er spítalinn á röngum stað og þess vegna er mikilvægt að staðarvalið fari fram, þannig að spítalinn sjálfur og aðrir geti hugað að uppbyggingunni á nýjum stað,“ segir Eyþór. „Þessi staðarvalsgreining þarf ekki að taka mjög langan tíma en þarf að vera gerð faglega og þá sjá menn uppbygginguna til framtíðar.“

„Vaktaskipti á spítalanum eru utan háannatíma í umferðinni til dæmis á morgnana, inniliggjandi sjúklingar ferðast lítið á milli staða og gestakomur dreifast á allan daginn. Umferðarröskun er því ekki eins mikil eins og halda mætti af umræðunni,“ segir Dagur og bætir við:
Þegar farið var yfir þetta þá var líka skoðað hver áhrifin yrðu af því að hafa aðra atvinnustarfsemi eða íbúabyggð á svæðinu ef spítalinn færi annað. Og í ljós kom að undantekningarlaust hefði önnur uppbygging skapað meiri umferð á svæðinu en uppbygging spítalans mun hafa í för með sér.
Það myndi auðvitað hafa mjög miklar afleiðingar fyrir verkefnið og ég held að þeir, sem er alvara um verkefnið, hljóti að nálgast alla slíka umræðu af ábyrgð,“ segir Dagur inntur eftir því hvort raunhæft sé að breyta staðsetningunni.
„En þetta er stór ákvörðun og gildir til langs tíma og eðlilegt að menn hafi efasemdir í fyrstu. En þeirri umfjöllun borgarstjórnar lauk með því að allir voru sammála um að staðsetningin styddist við mjög traust rök og ítarlega skoðun.“