Skipta þessar kosningar einhverju máli?
Í stuttu máli já. Það kann að þykja ómerkilegt fyrir Íslendinga að skipta sér af kosningum í meðalstóru mið-Evrópuríki. Þessar kosningar eru enn einn áfanginn í þjóðernisvæðingu Evrópu. Stjórnmálaflokkar sem hampa þjóðríkinu, hafna alþjóðasamstarfi, ala á andúð á útlendingum og gefa lítið fyrir almenn mannréttindi og fjölmiðlafrelsi hafa undanfarið sótt í sig veðrið.
Vitnisburður um þetta er heimsókn Jarosław Kaczyński, fyrrverandi forsætisráðherra Póllands, til Búdapest á föstudaginn. Heimsókninni var varið í að styðja við kosningabaráttu Orbáns og sagði Kaczyński í ræðu á föstudaginn að Ungverjaland gæti verið leiðarljós Evrópu. Kaczyński er nú formaður pólska stjórnarflokksins Lög og réttlæti, en Kaczyński er stundum kallaður hinn raunverulegi leiðtogi Póllands. Undir handleiðslu hans og annarra leiðtoga Laga og réttlætisflokksins hefur Pólland einmitt fetað svipaða braut og Ungverjaland. Nýleg dæmi eru tilraunir stjórnarmanna til að skerða rétt kvenna til þungunarrofs í öllum tilfellum og bann við því að saka Pólverja um þátttöku í helförinni.
Kosningarnar skipta því máli því áfram getur Ungverjaland verið líkan fyrir þjóðernissinnuð öfl Evrópu. Orbán hefur undanfarin ár hert tök sín á landinu, breytt kosnignakerfinu til að hygla eigin flokki, dregið úr sjálfstæði dómstóla og gert ríkisfjölmiðlana að áróðursmiðstöð stjórnvalda auk þess sem einkamiðlar hafa verið færðir vildarvinum á silfurfati.
Orbán hefur verið þyrnir í síðu Evrópusambandsins en nú horfa ríki mið- og austur Evrópu til stjórnarstefnu hans. Því geta þessar kosningar verið nokkuð þýðingarmiklar fyrir strauma og stefnur innnan Evrópusambandsins.
Hverjir eru í boði?
FideszStjórnarflokkurinn Fidesz hefur setið um stjórnartaumana í Ungverjalandi frá stórsigri flokksins árið 2010 og ber höfuð og herðar yfir aðra flokka í fylgi. Flokkurinn er íhaldssamur þjóðernisflokkur sem stendur vörð um kristin og ungversk gildi. Flokkurinn og leiðtogi hans, Victor Orbán, hafa verið til trafala innan Evrópusambandsins enda hefur flokkurinn takmarkaða trú á því verkefni.

Jobbik
Stjórnarandstöðuflokkurinn Jobbik er jafnvel enn harðari í stefnu sinni gagnvart útlendingum. Flokkinn má kalla öfga-þjóðernisflokk sem leggur áherslu á velferð Ungverja umfram annarra. Margir hafa sakað flokkinn um nýnasisma og gyðingaandúð en flokksmenn hafa ítrekað komið sér í klandur fyrir hatursfull ummæli í garð gyðinga.
Á tímabili rak flokkurinn einkaherdeild Magyar gárda eða ungverska varðsveitin. Varðsveitarmennirnir klæddust einkenningsbúningum, þjónuðu sem einkalögreglulið flokksins, marséruðu um götur borga og bæja og stöku sinnum beittu sveitarmenn roma fólk ofbeldi.
Sveitin hefur í dag verið leyst upp en stofnandi hennar Gabór Vona er nú formaður Jobbik. Frá stofnun hefur flokkurinn reynt að milda ímynd sína og skilgreinir sjálfan sig í dag sem hefðbundnum íhaldsflokk.
Sósíalistaflokkurinn
Nærri allan fyrsta áratug þessarar aldar var Ungverjalandi stjórnað af sósíalistum. Í dag er ungverski sósíalistaflokkurinn eins og skugginn af sjálfum sér, dvergvaxinn stjórnarandstöðuflokkur gagnvart stjórnarflokknum Fidesz.
Áður var flokkurinn hluti af kosningabandalagi vinstri flokka sem hrundi þó í sundur í kjölfar kosninganna 2014. Landslag vinstristjórnmála í Ungverjalandi er afar brothætt og margklofið líkt og þekkist hér á Íslandi. Sósíalistaflokkurinn er afar frábrugðinn áðurnefndu flokkunum tveimur.
Flokkurinn hampar Evrópusamstarfi, er mildari í garð flóttamanna og hælisleitenda og hafnar róttækri ungverskri þjóðernishyggju sem hefur verið ríkjandi í stjórnmálunum. Gergely Karácsony hefur verið útnefndur forsætisráðherraefni flokksins.
Aðrir
Áðurnefndir flokkar eru þeir þrír stærstu samkvæmt skoðanakönnunum. Þrír flokkar til viðbótar eru í stjórnarandstöðu og mælast mun smærri í skoðanakönnunum. Græningjaflokkurinn LMP, frjálslynda aflið Lýðræðisbandalagið og Együtt eða Samstaða sem er frjálslyndur jafnaðarmannaflokkur.
Allir flokkarnir skipa sér í fylkingu með Sósíalistaflokknum, eru til vinstri í stjórnmálum, styðja virka Evrópusamvinnu og hafna róttækri þjóðernishyggju.
Hver eru málefnin?
Yfirtaka múslima á Ungverjalandi og alþjóðlegt samsæri George Soros til að grafa undan stoðum Ungverjalands er á meðal þess sem hæst hefur borið í kosningunum. Efnahagsmál ættu að vera ofar á stefnuskránni þar sem hagvöxtur er undir væntingum og erlendar fjárfestingar eru að dragast saman.Evrópusambandið gæti virkjað sjöundu grein sambandssáttmálans gagnvart Ungverjalandi sem myndi svipta þá kosningarétti í leiðtogaráðinu og hefði í kjölfarið mikil áhrif á fjárfestingar Evrópusambandsins í Ungverjalandi.
Þrátt fyrir tvísýna tíma í efnahagsmálum landsins er efnahagsmál varla að finna í kosningastefnuskrám flokkanna.

„Þessi aðför sem hafði verið í undirbúningi í sjö mánuði í nokkrum löndum og beitt þessum gögnum sem Soros vogunarsjóðskóngur hafði keypt og gat notað að vild,“ sagði Sigmundur Davíð í viðtali á Útvarpi Sögu fáeinum mánuðum eftir Panamalekann. Andúð Victors Orbán á George Soros er ekki svo ósvipuð. Hann hefur sakað Soros um að beita fjármálaveldi sínu til að grafa undan stjórnvöldum og Ungversku þjóðinni. Við fall kommúnísmans í Ungverjalandi voru þeir Orbán og Soros reyndar bandamenn. Orbán ungur frjálslyndur aðgerðarsinni og Soros fjárhagslegur bakhjarl hans.
Hatrammasta tilfellið í deilum þeirra Orbán og Soros er vafalaust þegar ungverska ríkisstjórnin gerði tilraun til að loka Mið-Evrópska háskólanum í Búdapest, en skólinn er fjármagnaður af Soros. Orbán sagði skólann stangast á við ný lög um menntastofnanir í landinu. Flestir eru þeirrar skoðunar að aðförin að skólanum hafi verið lítt dulbúin tilraun til að ná sér niður á Soros og liður í því að gera Ungverjaland að „ófrjálslyndu lýðræðisríki“. Háttsettir menn í stjórnarflokknum Fidesz höfðu nefnilega talið skólann eina helstu gróðrastíu frjálslyndrar hugsunar í Ungverjalandi.
Þessi deila hefur tekið yfir alla stjórnmálaumræðu í Ungverjalandi. Ekki er óalgengt að Soros bregði fyrir í kosningaáróðri. Gott dæmi er veggspjald sem spratt upp víða um Ungverjaland þar sem Soros breiðir faðminn yfir leiðtoga stjórnarandstöðunnar. Hvert og eitt þeirra með vírklippur í hendi og rífa niður landamæragirðingar Ungverjalands til að flóttamenn, rómafólk, múslimar, frjálslyndir og annar óþjóðalýður geti tekið yfir landið.

Orbán og stuðningsmenn líta á sig sem framvarðasveit gegn framandi innrásaröflum sem verja ungversk gildi. Á ungverskum Facebook síðum gengur nú til dæmis myndband þar sem Orbán er settur í líki Þjóðans konungs úr Hringadróttinssögu. Þar fer hann fyrir þjóðhollum Ungverjum og ræður niðurlögum Soros og stjórnarandstöðunnar sem eru í líki innrásarhers orkanna frá Mordor sem hafa lagt umsátur um Ungverjaland.
Hver mun vinna?
Allar líkur eru á að Orbán muni tryggja sér næstu fjögur árin við völd. Flokkur hans Fidesz mælist með tæplega 50 prósent atkvæða og kosningakerfið í Ungverjalandi virkar á þá vegu að það magnar sigur þess flokks sem fær flest atkvæði.Líklega mun þjóðernisflokkurinn Jobbik vera næst stærsti flokkurinn með um 17,6 prósent fylgi og þar á eftir kemur Sósíalistaflokkurinn með 12,4. Aðrir flokkar mælast með heldur minna fylgi.
Lítið getur ógnað yfirburðarstöðu Orbáns og Fidesz. Jafnvel þó að öll stjórnarandstaðan myndi koma sér saman um myndun stjórnar væri erfitt að yfirbuga Fidesz og þar að auki er ólíklegt að vinstriflokkarnir og Jobbik gætu komið sér saman um nokkurn hlut.
Ef að kosningaspár ganga eftir er líklegt að Fidesz muni halda áfram að breyta stjórnarskrá landsins til að herða enn frekar tök sín á samfélaginu. Orbán myndi halda áfram að þjóna sem forætisráðherra og mun verða þjóðernisöflum Evrópu frekari innblástur á komandi árum.