Skipulagsstofnun leggst gegn eldi á allt að 6,800 tonnum af frjóum laxi í sjókvíum í Ísafjarðardjúpi, sem fyrirtækið Háafell hefur áformað.
Stofnunin telur að áhrif laxeldis Háafells á villta laxastofna í Djúpinu séu líkleg til að vera verulega neikvæð og tekur undir með Hafrannsóknastofnun um að ekki eigi að leyfa eldi á frjóum laxi í Djúpinu, miðað við fyrirliggjandi áhættumat.
Auk hættu á erfðablöndun tilgreinir stofnunin að eldinu geti fylgt aukin hætta á að fisksjúkdómar og laxalýs berist í villta laxastofna.
Skömmu eftir að álit stofnunarinnar var lagt fram í gær, var það dregið til baka, að beiðni Háafells, þar sem fyrirtækið hyggst leggja fram frekari upplýsingar um framkvæmdina, þannig að biðstaða er nú í málinu.
Skipulagsstofnun leggst gegn laxeldi í Ísafjarðardjúpi

Tengdar fréttir

Verð á eldislaxi lækkað um þriðjung
Kílóverð á eldislaxi lækkaði skarpt í norskum krónum í fyrra. Greinendur spá áframhaldandi lækkunum. Forstjóri Arnarlax segir verðið þó sögulega hátt. Lækkanirnar séu engin "katastrófa“. Ólíklegt þykir að þær hafi afgerandi áhrif á rekstur hérlendra fiskeldisstöðva.

Segir velferð fiskanna aldrei hafða að leiðarljósi hér á landi
Formaður Dýraverndunarsamtaka Íslands segir bæði frístundaveiðimenn og laxeldisfyrirtæki stunda siðlausa hegðun gagnvart fiskum sem synda í kringum landið, bæði frjálsir og í kvíum. Annað væri uppi á teningnum ef fiskar gæfi frá sér sársaukaóp við veiðar. Fimmtíu þúsund fiskar drápust í eldi í Tálknafirði

Full ástæða til að óttast erfðablöndun í laxeldi
Einn helsti sérfræðingur Noregs á sviði rannsókna á erfðafræðilegum áhrifum laxeldis segir að full ástæða sé til að óttast erfðablöndun villtra laxa og eldislaxa hér á landi.