Ljóst er að meirihlutinn stendur afar tæpt því könnun sem Fréttablaðið birti niðurstöður úr fyrr í vikunni leiddi í ljós flokkarnir þrír fengu ellefu menn af 23 og myndu þannig ekki ná meirihluta. Hafa ber í huga þegar talað er um núverandi meirihluta að Björt framtíð á aðild að honum en mun ekki bjóða fram í borginni í vor. Fjórir flokkar eru því í meirihluta í borginni nú.
Kosningaspá sem Kjarninn birti í vikunni bendir líka til þess að núverandi meirihluti sé „mjög valtur í sessi“, eins og það er orðað í spánni, en Samfylkingin, VG og Píratar myndu þó ná að halda meirihluta samkvæmt spánni. Inni í kosningaspá Kjarnans voru fjórar kannanir sem teknar voru á tímabilinu 8. mars til 25. apríl svo nýjasta könnun Félagsvísindastofnunar fyrir Morgunblaðið er ekki þar inni.
Samkvæmt könnun stofnunarinnar mælist Samfylkingin nú með mesta fylgið eða 30,7 og átta borgarfulltrúar. Sjálfstæðisflokkurinn fylgir þar á eftir með 27,3 prósent og sjö borgarfulltrúar. Aðrir flokkar fá mun minna fylgi og er því ekki fjarri lagi að tala um turnana tvo í borginni.
Þannig mælast Vinstri græn með 9,7 prósent fylgi, Miðflokkurinn með 7,3 prósent fylgi og Píratar með 6,8 prósent. Allir þessir flokkar myndu fá tvo borgarfulltrúar kjörna samkvæmt könnun Félagsvísindastofnunar.
Viðreisn mælist svo með 5,3 prósent og Flokkur fólksins 3,6 prósent og fær hvor flokkur um sig einn borgarfulltrúa.