Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis og auðlindaráðherra, hefur skipað þverpólitíska nefnd um stofnun þjóðgarðs á miðhálendinu. Fulltrúar allra átta þingflokka á Alþingi eiga sæti í nefndinni en
Óli Halldórsson, sveitarstjórnarmaður í Norðurþingi, er formaður nefndarinnar.
Tveir fulltrúar sveitarfélaga sitja einnig í nefndinni ásamt fulltrúum frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu og forsætisráðuneytinu. Valtýr Valtýsson, sveitarstjóri Bláskógabyggðar, og Dagbjört Jónsdóttir, sveitarstjóri Þingeyjarsveitar, eru tilnefnd af Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Margrét Hallgrímsdóttir þjóðminjavörður er tilnefnd af forsætisráðuneytinu.
Á vef Stjórnarráðsins kemur fram að hlutverk nefndarinnar verði meðal annars að skilgreina mörk þjóðgarðsins og setja fram áherslur um skiptingu landsvæða innan hans í verndarflokka. Þá er henni ætlað að fjalla um hugsanlegar aðkomuleiðir og þjónustumiðstöðvar, svæðisskiptingu og rekstarsvæði og greina tækifæri með stofnun þjóðgarðs á byggðaþróun og atvinnulíf.
Jafnframt er henni ætlað að gera tillögur að helstu áherslum í stjórnunar- og verndaráætlunum og verndaráætlunum og atvinnustefnu fyrir þjóðgarðinn og lagafrumvarpi um þjóðgarðinn, þar sem meðal annars er tekin afstaða til stjórnskipulags þjóðgarðsins.
Skipar þverpólitíska nefnd um stofnun miðhálendisþjóðgarðs
Ingvar Þór Björnsson skrifar
