Fyrirtækið hefur unnið með Vatnajökulsþjóðgarði að uppsetningu Smart Access kerfisins og er það í notkun í Skaftafelli og stefnt er að greiningu við Jökulsárlón. Ægir segir að lausnir á átroðningi á ferðamannastöðum eðlilega vera mikið í umræðunni. Hann tekur Reykjadal og lokun göngusvæðisins þar sem nýlegt dæmi.
„Það er búið að loka vegna þess að ásóknin er svo mikil á þeim tímum þegar svæðið er viðkvæmt. Ef fylgst hefði verið með ásókninni aftur í tímann hefði auðveldlega mátt stýra umferðinni.“Ægir segir kerfið vera einfalt í notkun. Þegar ökumaður ekur inn á svæðið er hann upplýstur að um gjaldsvæði sé að ræða. Myndavél greinir bílnúmer ökutækisins og skráir hjá sér hvenær bifreið er ekið inn á svæðið og af því. Ökumaður getur greitt í gegnum smáforrit, í greiðsluvél á staðnum eða á vefnum. Kerfið ber loks saman greiðslur í kerfinu og viðveru ökutækja. Fari ökumaður án þess að borga er eiganda bílsins send krafa í heimabanka.
Kerfið nýtir sér svo upplýsingar frá ökutækjaskrá til þess að greina aðsóknina. „Þar getum við séð stærð bíla og farþegafjölda. Með því að greina það yfir daginn, alla vikuna, allt árið getum við séð hvað eru margir inni á svæðinu í einu,“ útskýrir Ægir. Með því móti má greina hvenær mest ásókn er á svæðið og breyta gjaldinu í takt við það. „Svo er hægt að tengja þetta við veðurspá og þá geta staðahaldarar áætlað út frá veðri hversu margir mæta og hagað gjaldskrá út frá því.“
