„Þessar íbúðir eru afar áhugaverður kostur fyrir bæði þá sem vilja minnka við sig og barnafólk sem vill komast í sveita og gróðursæluna í Hveragerði“, segir Gísli Steinar Gíslason, stjórnarformaður Suðursala sem er verkkaupi.

„Þetta er stærsta íbúðaverkefni sem unnið hefur verið í Hveragerði enda framkvæmd upp á um tvo milljarða króna“, segir Gylfi Gíslason hjá Jáverki.
Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri fagnar framkvæmdunum. „Það er mikil eftirspurn eftir húsnæði í Hveragerði og því er frábært að fá þessar nýju íbúðir í fjölbýlishúsum og raðhúsum fyrir fólk á öllum aldri. Það má segja að það hafi verið uppselt í Hveragerði síðustu tvö árin því ef það kemur hús á sölu þá selst það strax. Þetta mun vonandi breytast með nýju íbúðunum á Edenreitunum,“ segir Aldís.