Teppið ekki tilbúið í Árbænum │Leikurinn við Val verður í Egilshöll Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 27. júlí 2018 14:00 Heimavöllur Fylkis er hægt og rólega að taka á sig rétta mynd Mynd/fylkir
Fylkir mun ekki ná að taka á móti Íslandsmeisturum Vals á heimavelli sínum í Árbænum heldur verður leikurinn leikinn í Egilshöllinni.Vísir greindi frá því í byrjun vikunnar að byrjað væri að leggja gervigras á Floridanavöllinn í Árbænum. Ljóst var að það yrði erfitt að ná að gera völlinn tilbúinn fyrir leikinn sem fer fram á mánudagskvöld, en þó var stefnan á að spila hann í Lautinni. „Þrátt fyrir að framkvæmdirnar gangi vel næst því miður ekki að klára allt fyrir mánudaginn en gert er ráð fyrir að allt sem tengist vellinum sjálfum klárist í næstu viku. Eins og sést á meðfylgjandi mynd er verkið langt komið og fara næstu dagar í að setja línur og innfyllingu í völlinn. Félagið reyndi að fresta leiknum en vegna þátttöku Vals í Evrópukeppninni tókst ekki að finna nýjan tíma fyrir leikinn,“ sagði Hörður Guðjónsson, framkvæmdarstjóri Fylkis, í tilkynningu sem félagið setti á Facebook síðu sína. Fylkir er í fallsæti í Pepsi deildinni og hefur tapað síðustu fimm leikjum sínum. Þeir hafa fengið á sig fimm mörk í síðustu tveimur leikjum og ekkert lið í deildinni hefur fengið á sig eins mörg mörk. Fylkir og Valur mætast á mánudagskvöld klukkan 19:15 í Egilshöll og verður leikurinn í beinni textalýsingu á Vísi. Næsti heimaleikur Fylkis að honum loknum verður 12. ágúst gegn Stjörnunni og mun sá leikur mögulega verða spilaður á nýju teppi í Árbænum.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Enginn ákærður vegna andláts Adam Johnson Sport Uppgjörið: Tindastóll - Álftanes 105-104 | Lygilegar lokamínútur Körfubolti Arnór Borg í Vestra og Fram fann markmann Íslenski boltinn „Þetta er úrslitakeppnin og hlutir gerast“ Körfubolti Valur í kjörstöðu gegn ÍR Handbolti Sigtryggur Arnar eignaðist strák rétt fyrir stórleik kvöldsins Körfubolti Víkingur fær leikmann úr dönsku B-deildinni Íslenski boltinn Mark snemma leiks gerði gæfumuninn Fótbolti Upgjörið: Breiðablik - Fram 7-1 | Upprúllun í Kópavogi Íslenski boltinn Uppgjörið: Haukar - Fram 25-24 | Orkufrekur eltingaleikur Handbolti Fleiri fréttir Arnór Borg í Vestra og Fram fann markmann Víkingur fær leikmann úr dönsku B-deildinni „Fannst við halda góðri stjórn á leiknum“ Upgjörið: Breiðablik - Fram 7-1 | Upprúllun í Kópavogi Uppgjörið: Víkingur R. - Þróttur R. 0-1 | Óheppilegt sjálfsmark skilaði gestunum sigri Hin þaulreynda Anna Björk heim í KR Henríetta lánuð til Þór/KA Aftur heim í Stjörnuna eftir dvöl hjá FH Gylfi valdið mestum vonbrigðum Telma mætt aftur með gullhanskann í Breiðablik Fagnaði tvítugsafmæli í gær og lánaður til FH í dag Stærsti sigur KR á ÍA í deildarleik Sannfærðir um að FH verði í fallbaráttu „Jæja Heimir, þú verður að hjálpa mér að enda þetta vel“ Sjáðu vítin á Hlíðarenda, skrautleg mörk í Garðabæ og umdeilt mark Fram TikTok-stjarna ÍBV dælir út efni frá Eyjum „Þetta var erfitt og maður var aldrei rólegur“ Vilja Gylfa Þór ekki til baka: „Enginn skilaréttur“ „Ekki áhyggjuefni, þetta var bara hörkuleikur“ Uppgjörið: Fram - Afturelding 3-0 | Mosfellingum kippt niður á jörðina Uppgjörið: Valur - Víkingur 1-1 | Jafntefli sanngjarnt þegar hvorugt lið sækir til sigurs Uppgjörið: Stjarnan - ÍBV 2-3 | Gott gengi Eyjamanna heldur áfram Dagur Örn sagður á leið til FH Sjáðu mörkin: Endurkoma Stjörnunnar og mörkin hjá Val og FH Sjáðu markaveislu KR og rothögg KA gegn FH „Kom bara í hörkustandi inn í þennan leik“ Uppgjörið: Valur - Þór/KA 3-0| Valur kláraði dæmið í síðari hálfleik Uppgjörið: Tindastóll - Stjarnan 1-2 | Ótrúleg endurkoma Garðbæinga Uppgjörið: KR - ÍA 5-0 | Skemmtikraftarnir slógu ekki slöku við „Ég á nokkuð mörg mörk miðað við hafsent“ Sjá meira