„Fyrsta heimsókn mín til Íslands var árið 1975. Þá var ég 39 ára gamall og átti loks næga peninga til að ferðast. Það hafði alltaf verið draumur minn að ferðast á norðurslóðum. Svisslendingar halda vanalega suður á bóginn en Ísland og Grænland höfðuðu alltaf til mín. Fólk sagði að ég væri óður að vilja ferðast til Íslands,“ segir Florian í samtali við Fréttablaðið sem hitti á hann í Reykjavík í gær þar sem hann var að koma úr ferð í Hvalfjörðinn ásamt leiðsögumanni og hópi samlanda sinna.

„Ég sá landslagið, eldfjöllin og jöklana og hafði mikinn áhuga á þessu. Svo vil ég fara aftur á staði sem ég þekki,“ segir Florian sem kveðst aðspurður ekki hafa heimsótt neitt annað land jafnoft og Ísland. Grænland hafi hann heimsótt í fjórgang og telur hann að hann þekki nú betur til á Íslandi en í heimalandinu.
„Ég hef dvalið hér á Íslandi í 550 daga í það heila og kannski séð meira af Íslandi en margir Íslendingar. Áður fyrr vorum við mikið í tjöldum á ferðalögunum og fórum bara þangað sem veðrið var gott, mikið um hálendið,“ segir Íslandsvinurinn Florian og sýnir blaðamanni kort sem sýnir skrásetningu hans á dvalarstöðum og ferðalögum víðs vegar um landið.
Þegar hann starfaði sem kennari sneri hann svo að eigin sögn ávallt aftur klyfjaður ljósmyndum til að sýna nemendum sínum. Þetta ríflega fjögur þúsund mynda safn hafi, að hans sögn, kveikt áhuga nemendanna á Íslandi og þeir hafi margir hverjir heimsótt landið síðan.