Stjórn Klúbbs matreiðslumanna (K.M.) hefur tekið ákvörðun að rifta samstarfssamningi kokkalandsliðsins við Arnarlax, dags. 20. ágúst sl., m.a. vegna vanefnda fyrirtækisins á samningnum. Yfirlýsing þess efnis hefur þegar verið send til Arnarlax og samningurinn er því niður fallinn. Svo segir í tilkynningu frá Klúbbi matreiðslumeistara.
„Stjórn K.M. harmar þau viðbrögð sem samstarfssamningurinn hefur valdið. Það er von stjórnar K.M. að með þessu skapist sátt um störf kokkalandsliðsins í framtíðinni og að forsvarsmenn Arnarlax og aðrir sem að málinu koma sýni málinu skilning.“

Peningar bárust ekki á réttum tíma
Einar Hugi Bjarnason, hæstaréttarlögmaður og lögmaður K.M., segir Vísi að vannefndirnar snúist að greiðslum sem áttu að berast frá Arnarlaxi.
„Það er þannig að samningurinn var undirritaður 20. ágúst. Í honum felst að Arnarlax þarf að greiða ákveðna fjárhæð í tveimur jöfnum greiðslum.
Gjalddagi fyrri greiðslu var 1. september. Sú greiðsla var ekki innt af helgi. Samningum var meðal annars rift vegna þess greiðsludráttar,“ segir Einar Hugi.
Hann segist ekki vita hvort gengið hafi verið á eftir greiðslunni eða ekki. Þá vilji hann ekki tjá sig um hve háa upphæð ræði.
„Ég vil ekki fara út í efnisatriði samningsins en get þó upplýst að þetta var tiltekin fjárhæð sem átti að berast í tveimur greiðslum. Sú fyrri 1. september og seinni 1. mars. Sú fyrri er fallinn á gjalddaga. Greiðslan var ekki innt af hendi.“

Telur Arnarlax hafa orðið fyrir skaða
Þorsteinn Másson, útibússtjóri Arnarlax í Bolungarvík, tjáði Vísi fyrr í dag að viðbrögðin í gær hefðu verið mikil vonbrigði fyrir starfsfólk Arnarlax og valdið fyrirtækinu skaða.
„Þetta er ótrúlega sérstakt. Samningsferlið hófst fyrir um tæpum tveimur mánuðum og aldrei á því tímabili, þar sem haldnir voru fundir og annað slíkt, komu neinar athugasemdir til okkar að fólk hefði einhverjar áhyggjur af okkar framleiðslu eða öðru,“ segir Þorsteinn.
Hann vonaðist eftir farsælli lausn en sagði dapurt að engar athugasemdir hefðu verið gerðar á neinu stigi við samninginn.
Upphlaupið hefði komið þeim á óvart.