Gerir tillagan, sem flutt er af Hildi Björnsdóttur, borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, ráð fyrir því að sömu fjárframlög fylgi nemendum hvort sem um einkarekinn skóla eða skóla rekinn af borginni sé að ræða.
Pawel segir að tillöguna þurfi að skoða í samhengi við gerð fjárhagsáætlunar og þá sé ýmislegt í vinnslu tengt frístundaheimilum og húsnæðismálum grunnskóla borgarinnar.
„Við fögnum öllum góðum tillögum og ræðum þær í borgarstjórn. Þessi tillaga er í anda Viðreisnar og okkur er málið kært. Þetta er hins vegar stærra mál en bara þessi tiltekna tillaga,“ segir Þórdís Lóa Þórhallsdóttir. Hún bendir einnig á að í sáttmála meirihlutans sé kveðið á um áframhaldandi stuðning við einkarekna leik- og grunnskóla.

„Þetta var ein af áherslum Viðreisnar í kosningabaráttunni og rataði inn í sáttmála meirihlutans. Þetta er eitthvað sem við ætlum að reyna að keyra af stað,“ segir Pawel.
Hann segir að fordæmi sé til staðar í Mosfellsbæ sem horft verði til. „Hugmyndin er að hafa einn leikskóla opinn í hverju hverfi yfir hásumarið og skapa þannig meiri sveigjanleika fyrir foreldra. Reynslan úr Mosfellsbæ sýnir að þar hafa um fimm til tíu prósent foreldra nýtt sér sumaropnanir.“
Sumaropnun leikskóla gæti að mati Pawels til dæmis nýst námsmönnum vel enda þurfi margir þeirra að nýta sumarið til vinnu. Þá sé líka horft til hópa eins og fólks af erlendum uppruna sem hafi oft síðra félagslegt tengslanet.
Tillagan sem liggur fyrir borgarstjórn gerir ráð fyrir að skóla- og frístundasviði verði falið að hefja undirbúning að verkefninu. „Fyrsta skrefið væri væntanlega að leita eftir áliti stjórnenda leikskólanna og finna þá skóla sem hafa áhuga á að taka þátt í verkefninu.“