Pjotr Verzilov, liðsmaður rússnesku pönksveitarinnar Pussy Riot og einn ábyrgðarmanna fréttasíðunnar Mediazona, dvelur nú á sjúkrahúsi í Moskvu og er ástand hans sagt alvarlegt. Guardian greinir frá þessu.
Samkvæmt upplýsingum fréttasíðunnar Meduza á hann að hafa misst sjónina og talgetu og telja vinir Verzilov að eitrað hafi verið fyrir honum.
Veronika Nikulsjina, kærasta Verzilov og sömuleiðis liðsmaður Pussy Riot, segir að læknar hafi ekki verið með nein skýr svör hvað hafi gerst, en að Verzilov hafi verið fluttur í skyndi á eiturefnadeild sjúkrahúss í höfuðborginni.
„Læknirinn sagði bara að ástand hans væri alvarlegt, en að vísbendingar séu um betri líðan og að hann sýni nú viðbrögð þegar hann heyrir nafn sitt,“ segir Nikulsjina.
Ruddust inn á völlinn
Nikulsjina og Verzilov voru í hópi fjögurra sem voru handtekin eftir að hafa ruðst inn á völlinn þegar úrslitaleikur Frakka og Króata var spilaður á heimsmeistaramótinu í fótbolta í Rússlandi í sumar.
Fjórmenningunum var sleppt úr fangelsi í lok júlí, þegar þau höfðu afplánað hálfs mánaða dóm fyrir uppátækið.