Engin pólitísk viðkvæmni fyrir því að nota orðið borgarlína [email protected] skrifar 22. september 2018 07:30 Framkvæmdastjórar sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu ásamt ráðherra við undirritunina í gær. Fréttablaðið/Ernir
Samgöngur Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, segir enga pólitíska viðkvæmni hafa verið fyrir því að nota orðið borgarlína í viljayfirlýsingu hans, borgarstjóra og bæjarstjóra sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu sem undirrituð var í gær. Eyþór Arnalds, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, veitti fjarveru orðsins athygli í gær. Dagur B. Eggertsson segir að í skjölum sem vísað er í sé orðið notað. „Mér finnst borgarlínuorðið mjög gott og nota það gjarnan sjálfur um hágæða almenningssamgöngukerfi sem er hugtakið sem er notað í þessu samkomulagi. Í þeim skjölum sem vísað er í er orðið borgarlína líka notað þannig að ég held að það taki ekki langan tíma að fjalla um það í þeirri vinnu sem fram undan er,“ segir Dagur B. spurður út í málið.Sigurður Ingi Jóhannsson, samgönguráðherra. Fréttablaðið/ErnirSkjölin sem Dagur vísar í eru að hans sögn sameiginlegar tillögur sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu, Vegagerðarinnar og samgönguráðuneytisins sem lagðar voru fram í febrúar síðastliðnum. „Það er ekki nein einstök framkvæmd tilgreind þarna, heldur er talað um samgöngur á stofnbrautum, umferðarflæði, nútímaalmenningssamgöngur, ekkert hugtak eða nafn á neinum tilteknum framkvæmdum notað,“ segir Sigurður Ingi. Fjallað sé almennt um þetta en afraksturinn verði síðan tilteknar framkvæmdir og samkomulag um þær. Dagur sagði við undirritunina í gær að öllum vafa væri nú eytt um skiptingu kostnaðar við borgarlínuverkefnið. Eyþór Arnalds sagði á Facebook-síðu sinni í gær að það væri vissulega fagnaðarefni að farið yrði í framkvæmdir á höfuðborgarsvæðinu eftir stórt stopp en að ljóst væri að Miklabraut í stokk væri ekki væntanlegt verkefni næsta áratuginn og að borgarlínan væri ófjármögnuð. Viljayfirlýsingin er um að hefja viðræður um uppbyggingu samgangna á höfuðborgarsvæðinu. Markmiðið er að ná samkomulagi um fjármagnaða áætlun um fjárfestingar í stofnvegum og kerfi almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu. Í viljayfirlýsingunni er talað um að hefja framkvæmdir við hágæða almenningssamgöngur á þarnæsta ári, eyða flöskuhálsum og stefna að sjálfbæru, kolefnishlutlausu borgarsamfélagi og öflugri almenningssamgöngum í takt við loftslagsáætlun stjórnvalda og áherslur sveitarfélaganna, eins og það er orðað í yfirlýsingunni.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið „Fyrst hélt ég að þetta væri eitthvað grín“ Innlent „Viltu ekki tala við mig eins og ég sé gamalmenni“ Innlent Þrír látnir eftir skotárás í Uppsölum Erlent „Við þrífumst ekki til lengdar ein“ Innlent „Í guðanna bænum höldum vöku okkar við aksturinn" Innlent Varðstjóri leystur undan vinnuskyldu vegna gruns um njósnir Innlent Allt í rugli á Rauðahafi Erlent Ný stjórn Ríkisútvarpsins kjörin Innlent Von á allhvössum vindi og rigningu Veður Hraðbankinn enn ekki látinn í friði Innlent Fleiri fréttir Furðar sig á umdeildri Exit-auglýsingu og hækkar veiðigjöldin Selfyssingar buðu lægst í brúasmíði á Vestfjörðum Hræðilegt að missa samskipti við umheiminn og veiðigjöldin Varðstjóri leystur undan vinnuskyldu vegna gruns um njósnir Vesturbæingar búa sig undir fjögurra vikna sundlaugarlokun Mikill reykur vegna elds í bílatætara Vill taka upp stöðvarskyldu tveimur árum eftir að hún var afnumin Ný stjórn Ríkisútvarpsins kjörin Létt í lund þrátt fyrir margra klukkustunda bið eftir Lissabon „Í guðanna bænum höldum vöku okkar við aksturinn" „Viltu ekki tala við mig eins og ég sé gamalmenni“ Ráðherra skoðar frekari girðingar á strandveiðar Rafmagnið komið í lag og verðbólgan eykst á ný „Fyrst hélt ég að þetta væri eitthvað grín“ Fá ekki áheyrn vegna stympinga kennara og nemanda Hraðbankinn enn ekki látinn í friði Foreldrar eigi að byrja á því að setja sjálfum sér skjátíma „Við þrífumst ekki til lengdar ein“ Reyndu að brjótast inn í hraðbanka Mikilvægt að vera betri í bakgarðinum en óvelkomnir gestir „Við erum mjög háð rafmagninu“ Gyltur gjóta þrettán til sextán grísum í hverju goti Öryggi ógnað og refsingar fyrnist Starfsfólk Isavia of smeykt til að taka á kaffistofumálinu Fólk eigi ekki að breyta sínu daglega lífi vegna frásagna af hópnauðgun Sambandsleysi í suðri og óviðunandi ástand í fangelsum Vilja láta rannsaka aðild flóttateymis í máli Oscars Fangelsi oft eina úrræðið Allt á áætlun en Spánarfarar beðnir um að fylgjast með Björn tekur við af Helga Sjá meira