Á myndinni, sem Vísir greindi frá á sínum tíma, mátti sjá flugþjóna- og freyjur liggjandi á gólfinu á flugvelli í Malaga á Spáni. Áhöfnin var sögð föst á flugvellinum vegna veðurs og var Ryanair gagnrýnt fyrir að veita starfsfólki sínu ekki betri aðbúnað.
Sjá einnig: Mynd af áhöfn Ryanair reitir netverja til reiði
Eftir að myndin fór í dreifingu sendi Ryanair frá sér yfirlýsingu þar sem félagið hélt því fram að myndin væri sviðsett. Ryanair bætti svo um betur í gær þegar það birti myndband á Twitter-síðu sinni sem virðist tekið úr öryggismyndavél herbergisins þar sem áhöfnin dvaldi. Í myndskeiðinu má sjá áhafnarmeðlimina sex standa upp úr sætum sínum og leggjast á gólfið.
Eftir að kollegi þeirra hefur dregið upp síma sinn og tekið mynd af þeim á gólfinu stendur fólkið upp aftur og gengur út eða aftur til sæta sinna. Myndbandið má sjá hér að neðan en flugfélagið segir það sanna að hin fræga ljósmynd sé sviðsett.
Ryanair exposes fake photo of cabin crew sleeping in crew room. Watch video here: pic.twitter.com/tzTn6EHsKH
— Ryanair (@Ryanair) October 17, 2018
Aðrir netverjar spurðu sig hvort flugfélaginu þætti ásættanlegt að áhafnir Ryanair þyrftu að verja nóttinni á stólum, sem vart getur talist þægilegt til lengdar. Þá settu aðrir stórt spurningarmerki við það að flugfélag væri að leka upptökum úr öryggismyndavélum til að klekkja opinberlega á starfsmönnum sínum.
Enn aðrir sögðu að myndbandið sýndi fram á að Ryanair hefði brugðist enn fleiri starfsmönnum sínum en upphaflega var talið. Heildarfjöldi þeirra væri ekki 6, eins og sjá má á myndinni, heldur 24 - átta flugmenn og 16 flugfreyjur og þjónar - eins og sést í myndbandinu.
Þegar veðrinu slotaði var starfsmönnum Ryanair að endingu flogið til Portúgal. Þar þurftu þeir að bíða um borð í vél félagsins í þrjár klukkustundir því sækja þurfti flugmann til Lundúna til að flytja fólkið aftur til síns heima.
Myndina sem olli öllu fjarðafokinu má sjá hér að neðan.
This is a Ryanair 737 crew based in Portugal, stranded in Malaga, Spain a couple of nights ago due to storms. They are sleeping on the floor of the Ryanair crew room. RYR is earning €1.25 billion this year but will not put stranded crews in a hotel for the night. @peterbellew ? pic.twitter.com/lILWZVqqGj
— Jim Atkinson (@Jimbaba) October 14, 2018