Landssamband veiðifélaga lýsir yfir vonbrigðum með þá niðurstöðu Alþingis að breyta fiskeldislögum þannig að opnað sé á möguleika ráðherra til að gefa út rekstrarleyfi til bráðabirgða til allt að 20 mánaða. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landssambandi veiðifélaga en lýsir sambandið einnig furðu sinni á því að hafa á engu stigi fengið að hafa umsögn um umrædda lagasetningu.
„Af umræðum undanfarna daga verður að teljast líklegt að þessi heimild verði notuð til að draga úr áhrifum úrskurða sem eru umhverfinu í hag. Er málum virkilega þannig komið að sé nægjanlegum þrýstingi beitt víki reglur um umhverfisvernd?,“ er spurt í tilkynningunni.
Minnir sambandið á að ekki eru liðnir nema nokkrir mánuðir síðan kynntar voru hugmyndir Hafrannsóknarstofnunar um 3.000 tonna „tilraunaeldi“ í Ísafjarðardjúpi. „Virðist það vera gert gagngert til að komast framhjá áhættumati um erfðamengun sem hafði í raun lokað fyrir eldi frjórra norskra laxa í Djúpinu. Stuttu áður hafði álit Skipulagsstofnunar, sem lagðist gegn eldi frjórra laxa, verið dregið til baka eftir mikinn pólitískan þrýsting. Eftir „velheppnaða“ herferð Landssambands fiskeldisstöðva gegn úrskurði Úrskurðarnefndar auðlinda og skipulagsmála má búast við að eldi frjórra laxa í Djúpinu verði næsta markmið, ásamt frekari tilslökunum á lögum um fiskeldi,“ segir í tilkynningunni.
Landssamband veiðifélaga hvetur unnendur íslenskrar náttúru til þess að vera sérstaklega á verði gagnvart frekari tilslökunum á reglum er varða umhverfisvernd. Einnig þeirri tilhneigingu, að sé nægu pólitískum þrýstingi beitt víki umhverfisverndin alltaf.
Segja að ef nægum þrýstingi sé beitt víki umhverfisvernd

Tengdar fréttir

Fiskeldisfrumvarpið samþykkt með öllum greiddum atkvæðum
Frumvarp sjávarútvegs-og landbúnaðarráðherra um rekstrarleyfi fiskeldisfyrirtækja til bráðabirgða var samþykkt um hálf tólf leytið i kvöld með 45 atkvæðum. Sex þingmenn sátu hjá.

Stjórnvöld björguðu lánalínu Arctic Fish á síðustu stundu
Frumvarp Kristjáns Þórs Júlíussonar veitir ráðherra heimild til að gefa út bráðabirgðaleyfi til laxeldisfyrirtækja.

Óttar Yngvason biðst afsökunar á orðum sínum
Óttar kveðst óska þess að hann hefði orðað hugsanir sínar betur.