Bandaríska leikkonan Pamela Anderson sakaði forsætisráðherra Ástralíu, Scott Morrison, um að hafa haft um sig klámfengin ummæli eftir að hún bað hann um að aðstoða Julian Assange, stofnanda Wikileaks.
Assange er ástralskur ríkisborgari en sótti um hæli í sendiráði Ekvador í London og hefur dvalið þar síðan árið 2012, upphaflega til að komast hjá því að vera framseldur til Svíþjóðar. Assange óttast nú að verða framseldur til Bandaríkjanna og dvelur enn í húsnæði sendiráðsins.
Anderson hefur verið stuðningsmaður Assange um nokkurt skeið. Á dögunum bað hún forsætisráðherra Ástralíu, téðan Morrison, um að hjálpa Assange að komast aftur til Ástralíu. Morrison hafnaði beiðni Anderson en sagðist þó eiga „fjöldan allan af vinum“ sem hafi boðist til þess að gegna hlutverki „sérstaks erindreka“ í samskiptum við Anderson.
Anderson svaraði ummælunum í opnu bréfi sem hún birti í gær og fordæmdi þar kynferðislegar aðdróttanir forsætisráðherrans í sinn garð.
„Þú gerðir lítið úr og hlóst að þjáningu Ástrala og fjölskyldu hans. Þú fylgdir því svo eftir með klámfengnum, óþörfum athugasemdum um konu sem tjáði pólitíska skoðun sína,“ skrifaði Anderson.
Ráðamenn í Ástralíu hafa nokkrir lýst yfir stuðningi við Anderson. Steve Ciobo, ráðherra í ríkisstjórn Morrison, tjáði þó áströlskum fjölmiðlum að ummæli forsætisráðherrans bæri ekki að taka alvarlega.
Sakar forsætisráðherrann um kynferðislegar aðdróttanir

Tengdar fréttir

Verður að þrífa baðherbergið og hugsa betur um köttinn til að fá að vera áfram
Yfirvöld í Ekvador hafa lagt línurnar fyrir Julian Assange, stofnanda Wikileaks, vilji hann áfram njóta friðhelgis innan sendiráðs Ekvador í London

Assange telur Ekvadora reyna að bola sér úr sendiráðinu
Utanríkisráðherra Ekvadors segir Assange frjálst að vera eins lengi og hann vill svo lengi sem hann fer eftir reglum.

Assange höfðar mál gegn Ekvador
Julian Assange, stofnandi og fyrrverandi ritstjóri Wikileaks, er að höfða mál gegn ríkisstjórn Ekvador, sem hann sakar um að brjóta á mannréttindum sínum og frelsi.