Samkvæmt rannsókn BMJ sem takmarkaðist við stúlkur fjórtán ára og yngri hefur stórlega dregið úr þessum verknaði, einkum í austurhluta Afríku. Árið 1995 máttu 71,4% stúlkna sæta limlestingum á kynfærum en árið 2016 var þetta hlutfall komið niður í 8%. Frá árinu 1990 til 2017 fækkaði tilvikum í norðurhluta álfunnar úr 57,7% niður í 14,1% og í vesturhluta Afríku eru tölur frá 1996 til 2017 sem sýna fækkun úr 73,6% niður í 25,4%.
Fjölmörg félagasamtök og alþjóðastofnanir hafa unnið ötullega að því að uppræta þennan verknað í sautján Afríkuríkjum og niðurstaðan sem birtist í breska læknatímaritinu gefur til kynna að mikill árangur hafi náðst. Íslendingar hafa allt frá árinu 2008 stutt slíkt verkefni með árlegum framlögum en það er sameiginlega unnið af Mannfjöldasjóði Sameinuðu þjóðanna (UNFPA) og Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNICEF). Í febrúar á þessu ári undirritaði utanríkisráðherra samstarfssamning um stuðning við verkefnið til næstu fjögurra ára.

Um 200 milljónir kvenna og stúlkna í heiminum eru taldar hafa þurft að líða fyrir þessa aðgerð sem hefur hrikaleg líkamleg og sálræn áhrif á konur alla ævi.
Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál.