Síminn kvartaði til fjölmiðlanefndar vegna háttsemi Ríkisútvarpsins á auglýsingamarkaði í tengslum við mótið. Þá bárust fjölmiðlanefnd óformlegar ábendingar sama efnis frá öðrum keppinautum RÚV.
Síminn kvartaði yfir því að RÚV hefði skilyrt kjör til viðskiptavina og skyldað þá til að kaupa auglýsingar fyrir tiltekna lágmarksfjárhæð vildu þeir fá birtar auglýsingar í tilteknum auglýsingaplássum vegna HM. Fyrirtækið kvartaði einnig fyrir því að RÚV hefði vikið frá birtri gjaldskrá og boðið auglýsingar vegna HM með tilboðum og afsláttarkjörum án þess að gagnsæi ríki um þau kjör og tilboð og án þess að þau væru birt á vef RÚV í samræmi við 5. Mgr. 7.gr. laga um Ríkisútvarpið.
Óheimilt að kosta dagskrárlið
Í niðurstöðu fjölmiðlanefndar segir að Ríkisútvarpinu hafi verið óheimilt að kosta þáttaröðina Saga HM, sem sýnd var á RÚV á fjögurra mánaða tímabili í aðdraganda HM 2018. Fjölmiðlanefnd gat ekki fallist á að söguleg upprifjun á fyrri heimsmeistarakeppnum sem sýnd var á margra vikna tímabili í aðdraganda mótsins gæti talist beintengd HM 2018. Þáttaröðin telst ekki falla undir lögbundnar undantekningar frá banni við kostun dagskrárefnis á RÚV og hafi Ríkisútvarpið því með kostun þáttanna brotið gegn 2. mgr. 7. gr. laga um Ríkisútvarpið.Þá hafi birting gjaldskrár fyrir auglýsingar og kostanir í tengslum við HM 2018 á RÚV verið ófullnægjandi og farið í bága við 5. mgr. 7. gr. laga um Ríkisútvarpið. Fram kemur að Ríkisútvarpið hafi samþykkt að gæta betur að samræmdri birtingu framvegis, þar með talið á vef félagsins, og hafi þegar gert viðeigandi úrbætur varðandi birtingu gjaldskrár fyrir auglýsingar og kostanir á vefnum.
Ríkisútvarpinu er gert að greiða eina milljón króna í stjórnvaldssekt.
Magnús Geir Þórðarson útvarpsstjóri segist í tilkynningu sem send var á fjölmiðla í dag vera sáttur við niðurstöðuna.
„Fjölmiðlanefnd tekur undir túlkun RÚV í öllu helsta umkvörtunarefni Símans. Í því felst viðurkenning á mikilvægri stöðu RÚV á fjölmiðlamarkaði. Við leggjum áherslu á að fylgja þeim reglum sem gilda um þennan þátt starfseminnar rétt eins og starfsfólk RÚV tekur hlutverk sitt í almannaþjónustu alvarlega.“