Bára er þó þekktari undir öðru nafni: Marvin. Uppljóstrarinn sem tók upp ógeðfellt samtal þingmannanna sex á gamlan, brotinn Samsung Galaxy A5-síma og fann sig knúinn til að koma upptökunum í hendur fjölmiðla. Í daglegu lífi er hún 42 ára kona, fötluð og hinsegin. Henni segist hafa blöskrað samtal þessara valdamiklu manna. Samtal þar sem þeim tókst að gera lítið úr þessum þremur hópum sem Bára tilheyrir.
Í samtali við nýjasta tölublað Stundarinnar segir Bára að henni hafi brugðið þegar hún heyrði á hvaða nótum þingmennir ræddu sína á milli. Hún hafi hreinlega ekki trúað eigin skilningarvitum. Því hafi hún ákveðið að hefja upptökuna, án þess að hugsa það neitt lengra.
„En því meira sem ég hlustaði, því reiðari varð ég, því þarna voru saman komnir valdamiklir menn að spúa hatri yfir minnihlutahópa á almannavettvangi,“ segir Bára í samtali við Stundina og bætir við: „Ég held að það hafi verið rétt að að upplýsa almenning um það sem þarna fór fram og eftir á að hyggja er ég stolt af því.“

Í viðtali Stundarinnar stígur hún þó fram undir eigin nafni. Viðtalið hverfist ekki síst um þá staðreynd að Bára er, sem fyrr segir, hinsegin kona og öryrki. Þrír hópar fólks sem þingmennirnir á Klaustri úthúðuðu yfir ölglasi á þriðjudagskvöldi.
Hún lýsir veruleika öryrkja á Íslandi og því skilningsleysi sem henni þykir barátta þeirra mæta hjá stjórnvöldum. Hún er með sjaldgæfan gigtarsjúkdóm og segist reglulega mæta fötlunarfordómum, Hún hefur síðustu ár haldið fyrirlestra og tekið þátt í vitundarvakningum um stöðu öryrkja, fátækra og fatlaðra, einmitt til að vinna bug á þessum fordómum.
Heyrðist herbergja á milli
Þann 20. nóvember settist hún niður til að fá sér kaffibolla á Klaustri og rak þar augun í kunnuglegt andlit - andlit Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar. Hún segist ekki hafa veitt þingmönnunum mikla eftirtekt fyrr en hún heyrði þá tala ítrekað um einhverjar „kellingar“ á þingi. Því næst hafi hún heyrt eitthvað enn grófara, sem hún man ekki hvað var, og því ákveðið að prófa að taka upp samtalið. Óþarfi er að fjölyrða um þau orð sem voru látin falla á Klaustri, þau þekkja flestir eftir afhjúpanir síðustu daga.Bára gefur þó lítið fyrir vangaveltur þingmannanna, þá sérstaklega Sigmundar Davíðs, um að hún hafi með upptöku sinni smokrað sér inn í einkasamtal sexmenninganna, eitthvað sem ætla mætti að bryti í bága við persónuverndarlög.

Þar að auki segir Bára að umtalað hljóð, sem heyrðist á Klaustri og líkt hefur verið við selsvæl, hafi verið framkvæmt inni á staðnum og að það hafi komið úr átt þingmannanna. Sigmundur útskýrði síðar að hljóðið hafi mátt reka til þess að verið var að færa stól.
Þegar blaðamaður Vísis sýndi fram á að ómögulegt væri að framkvæma slíkt hljóð með stólunum á staðnum taldi Sigmundur að hljóðið gæti hafa komið úr bremsu.
„Ef þetta var reiðhjól eða bíll að bremsa, þá hlýtur reiðhjólið eða bíllinn að hafa verið inni í herberginu, inni á Klaustri bar. En ég sá engan bíl og ekkert hjól,“ segir Bára.
Hún segist hafa komið í áfalli heim til sín eftir kaffibollann á Klaustri. Hún hafi spilað hluta af upptökunni fyrir eiginkonu sína og að hún hafi orðið orðlaus. Þingmönnunum hafi tekist að pakka ótrúlegu magni haturs og fordóma í ekki lengra spjall.
Engu að síður segist Bára vera stolt að því að vera „litla þúfan sem velti þessu þunga hlassi.“ Hún er auk þess þakklát þeim þingmönnum og almenningi sem hefur gripið tækifærið til að breyta umræðunni.
Viðtalið við uppljóstrarann Báru má lesa í heild sinni í nýjasta tölublaði Stundarinnar.