Lögregluyfirvöld mælast til þess að saksóknari taki upp málið og ákæri Benjamin Netanyahu fyrir mútur, fjársvik, umboðssvik og stórfellda spillingu. Eiginkonu hans, Söru Netanyahu er einnig gefið að sök að hafa reynt að hindra framgang réttvísinnar.
Í yfirlýsingu frá lögregluyfirvöldum í Ísrael kemur fram að lögregluna hafi lengi grunað að Netanyahu hafi á árunum 2015-2017 tekið stjórnvaldsákvarðanir í þágu ráðandi hluthafa í fjarskiptafyrirtækinu Bezek Telecom Israel, Shaul Elovitch.
Netanyahu var ráðherra fjarskiptamála á þessum árum auk þess að gegna embætti forsætisráðherra landsins.
Ísraelskir fjölmiðlar greina frá því í dag að í skiptum fyrir hagræðingu laga og reglugerða í þágu Elovitch hafi hann fyrirskipað blaða-og fréttamönnum á netmiðlinum Walla, sem er í eigu fyrirtæksins, að skrifa einungis fréttir og greinar sem sýni Netanyahu í jákvæðu ljósi.
Afskipti Netanyahu nánast daglegt brauð
Lögreglan segir þá einnig að hún hafi sannanir fyrir því að afskipti Netanyahu af fréttaflutningi hafi verið nánast daglegt brauð fyrir ritstjórn Walla og þá hafi fyrirskipanirnar verið afar óskammfeilnar.Í yfirlýsingu frá lögregluyfirvöldum í Ísrael kemur fram að lögregla hafi einnig viðað að sér nægum gögnum til að Shaul Elovitch og eiginkona hans Irisi Elovich verði ákærð fyrir mútur og spillingu.
Þetta er þriðja spillingarmálið sem Netanyahu er viðriðinn en hann neitar alfarið sök.