Tveir af nánustu bandamönnum Theresu May forsætisráðherra Bretlands eru sagðir taka þátt baktjaldamakki með þingmönnum Verkamannaflokksins um nýja þjóðaratkvæðagreiðslu um Brexit án vitundar forsætisráðherrans.
Þetta er staðhæft í breska dagblaðinu Sunday Times. David Lidington þingmaður Íhaldsflokksins er þannig sagður hafa átt viðræður við þingmenn Verkamannaflokksins um að ná saman þverpólitískri samstöðu um nýja þjóðaratkvæðagreiðslu.
Þá hefur Gavin Barwell starfsmannastjóri Downingstrætis látið hafa eftir sér að ný þjóðaratkvæðagreiðsla um Brexit væri eina leiðin í þeirri stöðu sem er komin upp vegna Brexit-sáttmála forsætisráðherrans.
Síðasta sunnudag fjallaði Sunday Times um fyrirætlanir forsætisráðherrans. Hún hefði í hyggju að slá atkvæðagreiðslunni í þinginu á frest. May þvertók fyrir fullyrðingar blaðamanns en annað kom á daginn nokkrum dögum síðar þegar hún tilkynnti í þinginu að hún hygðist fresta atkvæðagreiðslunni því Brexit-sáttmálinn hefði ekki meirihluta í þinginu.
Barwell og Lidington neita því að hafa tekið þátt í baktjaldamakki með Verkamannaflokknum.
Barwell sagði í tísti að hann teldi það ekki vera þjóðinni fyrir bestu að halda nýja þjóðaratkvæðagreiðslu og þá ætti hann heldur ekki í viðræðum við þingmenn Verkamannaflokksins um að blása til nýrrar þjóðaratkvæðagreiðslu.
Damian Hinds menntamálaráðherra í Bretlandi sagði í samtali við Sky News að það stæði ekki til að halda nýja þjóðaratkvæðagreiðslu til að leysa Brexit-deiluna.
Hann bætti við að ný þjóðaratkvæðagreiðsla myndi auka á sundrungu á meðal bresku þjóðarinnar.
„Við erum þegar búin að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu og nú verðum við að framfylgja vilja þjóðarinnar.“
Bandamenn sagðir undirbúa þjóðaratkvæðagreiðslu án vitundar May

Tengdar fréttir

May lifði gærdaginn af en er áfram völt í sessi
Theresa May fékk meirihluta atkvæða með sér í vantraustsatkvæðagreiðslu Íhaldsmanna. Hins vegar er ljóst að May nýtur tæpast stuðnings meirihluta þingsins.

May snýr tómhent heim frá Brussel
Breska forsætisráðherranum tókst ekki að fá neitt upp úr fulltrúum ESB sem gæti sannfært breska þingmenn til að greiða útgöngusamningi hennar atkvæði sitt.

Pundið hríðféll eftir að May tilkynnti um frestun á Brexit-atkvæðagreiðslu
Stjórnarandstaðan sakar ríkisstjórnina um að geta ekki stjórnað Bretlandi.

Fordæmir ákall Blair eftir nýrri Brexit atkvæðagreiðslu
May segir Blair grafa undan BRexit viðræðum með því að kalla eftir annarri atkvæðagreiðslu um útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu.