Það er Sigurlín Grímsdóttir, bóndi á Votumýri í Skeiða og Gnúpverjahreppi, sem er eigandi hestanna en styttunum hefur hún safnað í gegnum árin. Sigurlín er mikil áhugamanneskja um íslenska hestinn og á nokkra sem hún notar meðal annars til að fara í hestaferðir á sumrin.
„Það kom hér ung stúlka, sem eyddi heilmiklum tíma í að telja stytturnar og hún komst að því að þær væru vel yfir þrjú hundruð, ég man ekki alveg töluna,“ segir Sigurlín.
„Ég hef keypt svolítið í Kolaportinu og svo hef ég verið að þvælast hingað og þangað til útlanda og svo hefur fólk, sem hefur farið til útlanda keypt og látið mig fá,“ segir Sigurlín aðspurð hvar hún hefur fengið allar stytturnar.

„Það er stytta, sem fannst í Kína, að vísu afsteypa, en hún fannst á Silkileiðinni, þannig að hún er nokkur þúsund ára gömul, sem sagt fyrirmyndin af þessar styttu. Það var vinafólk okkar sem fór til Kína og færði mér styttuna þegar þau komu til baka.“
Sigurlín segist vera hætt að safna styttum af hestum enda allt plássið á hillunum búið. Hún gerir hins vegar mikið af því að mála myndir og þar eru hestar í miklu uppáhaldi hjá henni enda nokkrar fallegar hestamyndir upp á veggjum eftir hana á heimilinu á Votumýri.