Í frétt breska ríkisútvarpsins um málið segir að Mohammed al-Qunun hafi verið á ferðalagi með fjölskyldu sinni í Kúveit er hún flúði til Tælands fyrir tveimur dögum. Hún freistaði þess að fljúga áfram til Ástralíu frá Bangkok en segir að vegabréf sitt hafi verið gert upptækt á flugvellinum, þrátt fyrir að hún væri með vegabréfsáritun fyrir áframhaldandi ferðalag. Hér að neðan má sjá bæði mynd og myndband af Mohammad al-Qunun inni á hótelherberginu í Bangkok, þar sem hún dvelur enn.
Kuwait Air officials, #Thai Immigration officials and others are outside #Rahaf's door, demanding she open it. She is refusing, saying that she wants to see UN #Refugee Agency @Refugees & demanding #Thailand let her seek asylum. Time ticking down, flight leaves in 29 minutes. pic.twitter.com/wQ266wWFwX
— Phil Robertson (@Reaproy) January 7, 2019
Video from @rahaf84427714 just sent from her hotel room at the #Bangkok airport. She has barricaded herself in the room & says she will not leave until she is able to see #UNHCR. Why is #Thailand not letting @Refugees see her for refugee status determination? @hrw #SaveRahaf pic.twitter.com/3lb2NDRsVG
— Phil Robertson (@Reaproy) January 7, 2019
Mohammed al-Qunun vakti sjálf athygli á máli sínu á Twitter um helgina og biðlaði til erlendra yfirvalda að veita sér hæli. Hún segir í samtali við BBC að faðir hennar sé henni afar reiður. Þá segist hún hvorki mega mennta sig né vinna í heimalandinu og því sækist hún eftir frelsi.
„Bræður mínir og fjölskylda og sendiráð Sáda munu bíða komu minnar í Kúveit. Þau munu drepa mig. Líf mitt er í hættu. Fjölskylda mín hótar að drepa mig fyrir hina smávægilegustu hluti,“ sagði Mohammed al-Qunun í samtali við Reuters-fréttaveituna.
Morðhótun frá frænda
Ónafngreind vinkona Mohammed al-Qunun staðfestir ótta hennar við fjölskylduna í samtali við breska dagblaðið The Guardian.„Hún er fyrrverandi múslimi og á mjög stranga fjölskyldu, þau beita hana ofbeldi og það var brotið á henni kynferðislega. Hún fékk hótun frá frænda sínum, hann sagðist vilja sjá blóð hennar, hann vill drepa hana,“ segir vinkonan sem er sádiarabískur hælisleitandi í Ástralíu.
Mannréttindasamtök hafa lýst yfir þungum áhyggjum af máli Mohammed al-Qunun. Haft er eftir talsmanni samtakanna Human Rights Watch að stjórnvöld í Tælandi og Sádi Arabíu hafi lagt saman á ráðin um að sitja fyrir Mohammed al-Qunun við komu hennar til Tælands. Þá er mál Mohammed al-Qunun sagt sambærilegt máli hinnar sádiarabísku Dinu Ali Lasloom sem flúði fjölskyldu sína frá Kúveit til Filippseyja í apríl árið 2017. Hún var send til Sádi-Arabíu frá flugvellinum í Manila en ekki er vitað um afdrif hennar.
Eins og staðan er núna hefur Mohammed al-Qunun óskað eftir lögfræðingi og beðið um að fá að hitta fulltrúa flóttamannaráðs Sameinuðu þjóðanna í Tælandi en hvorugt fengið. Þá átti að draga hana með valdi um borð í flugvél á leiðinni til Kúveit um klukkan þrjú í nótt að íslenskum tíma. Snemma í morgun var þó staðfest á Twitter-reikningi hennar að hún hefði ekki farið með fluginu og væri örugg í Tælandi sem stendur.
For all people who support Rahaf
— Rahaf Mohammed رهف محمد القنون (@rahaf84427714) January 7, 2019
She's in her room
If there is any update, I will tweet