Hátt í tíu nýleg dæmi eru um að Reykjavíkurborg hafi farið fram úr áætlunum við framkvæmdir. Borgarstjóri segir framúrkeyrsluna vegna framkvæmda við Braggans í Nauthólsvík hins vegar frávik. Formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga er undrandi á tillögu um að vísa málinu til héraðssaksóknara.
Algengt er að heyra fréttir um að framkvæmdir á vegum hins opinbera standist ekki áætlanir. Þá hefur framúrkeyrsla á verkefnum á vegum Reykjavíkurborgar verið fréttaefni síðustu mánuði. Um er að ræða framkvæmdir við Gröndalshús, Hlemm Mathöll, Sundhöll Reykjavíkur, Vesturbæjarskóla, Félagsbústaði að Írarbakka, hjólastíga á Grensásvegi og framkvæmdir við nýjan innsiglingarvita við Sæbraut sem hafa alls farið mörg hundruð milljónir fram úr áætlunum. Og loks er það bragginn í Nauthólsvík sem fór um 350 milljónir fram úr áætlun borgarinnar.
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri hefur sagt í fréttum að þrátt fyrir að áætlanir standist oft ekki sé bragginn algjört einsdæmi.
Aldís Hafsteinsdóttir formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu segir oft erfitt að sjá alla þætti fyrir þegar áætlanir séu gerðar um framkvæmdir hvort sem um er að ræða heimili eða opinbera aðila.
„Verklegar framkvæmdir hafa víða farið framúr áætlunum ég ætla ekki að draga dul á það. Ég held hins vegar að flestir séu að vanda sig þegar þeir gera áætlanir en aftur á móti getur verk verið þess eðlis að það getur verið afskaplega erfitt að sjá fyrir sér alls konar óvissuþætti sem geta komið upp á framkvæmdartíma,“ segir Aldís.
Aldís segist vera undrandi á tillögu þeirra borgarfulltrúa sem vilja vísa Braggamálinu til héraðssaksóknara.
„Það kom mér auðvitað á óvart eins og svo mörgum öðrum að það sé rætt um að fara þá leið. Ég man ekki eftir það hafi verið gert áður á sveitarstjórnarstiginu,“ segir Aldís.
Minnist þess ekki að framúrkeyrslumálum hafi verið vísað til héraðssaksóknara

Tengdar fréttir

Ingibjörg Sólrún um braggamálið: „Svona getur nú pólitíkin verið ljót“
Tillaga um að vísa skýrslu innri endurskoðunar til embættis héraðssaksóknara verður lögð fyrir borgarfulltrúa á þriðjudag.

„Minnihlutinn heldur áfram að tefja og afvegaleiða umræðuna með popúlisma og rangfærslum“
Dóra Björt Guðjónsdóttir borgarfulltrúi Pírata segir að mikilvægt sé að draga lærdóm af braggamálinu. Hún vill nýta tækifærið til að knýja fram breytingar og bæta stjórnsýsluna en bætir við að sú vinna sem sé fyrir höndum verði grundvallast á staðreyndum.