Átakshópur forsætisráðherra í húsnæðismálum leggur til að uppbyggingu borgarlínu verði hraðað og uppbygging leiguíbúða fyrir tekjulága taki mið af afgengi að skilvirkum almenningssamgöngum. Þá verði framkvæmdum við stofnbrautir umhverfis höfuðborgarsvæðið hraðað miðað við það sem gert sé ráð fyrir í samgönguáætlun.
Tillögum átakshóps forsætisráðherra í húsnæðismálum sem kynntar voru í gær hefur verið vel tekið af aðilum vinnumarkaðarins og þær taldar líklegar til að liðka fyrir samningum nái þær fram að ganga. Þar er meðal annars lagt til að sveitarfélög verði skylduð til að ráðstafa fimm prósentum af byggingarmagni í félagslegt leiguhúsnæði sem þau sinni sjálf eða í samstarfi við óhagnaðardrifin leigufélög.
Þá taki uppbygging leiguíbúða fyrir tekjulága mið af ýmsum þörfum fjölskyldna með hliðsjón af aðgengi að skilvirkum almenningssamgöngum, atvinnu- og skólasókn og öryggi samgöngumannvirkja.
Uppbyggingu borgarlínu verði hraðar í ljósi mikillar uppbyggingar íbúða á höfuðborgarsvæðinu og vaxtarsvæðum á næstu árum. Framkvæmdum á stofnbrautum umhverfis höfuðborgarsvæðið samkvæmt samgönguáætlun verði hraðað.
Anna Guðmunda Ingvarsdóttir, annar formanna átakshópsins, segir mikilvægt að auðvelda óhagnaðardrifnum byggingarfélögum að byggja húsnæði þannig að markmiðið um að leiga verði að jafnaði ekki hærri en 25 prósent af tekjum.
Hvers vegna leggið þið svona mikla áherslu á samgöngurnar í þessu samhengi?
„Við búum lang flest hér á suðvesturhorninu en höfuðborgin er vissulega að stækka. Við sjáum að það eru möguleikar fyrir fólk til að búa í jöðrunum og í sveitarfélögunum hér í kring. Geta keypt þar íbúðarhúsnæði á hagstæðu verði eða hagkvæmu verði. En það er enginn ávinningur ef það þarf síðan að sækja alla atvinnu inn í höfuðborgina og samgöngukostnaður er mjög hár,” segir Anna Guðmunda.
Þá verði tekinn verði upp sérstakur samgöngupassi fyrir námsmenn og leigjendur undir tekju- og eignamörkum almenna húsnæðiskerfisins sem gildi fyrir höfuðborgarsvæðið og vaxtarsvæði umhverfis það.
Átakshópur leggur til að borgarlínu og framkvæmdum við stofnbrautir verði flýtt

Tengdar fréttir

Átakshópur segir húsnæðismarkaðinn að ná jafnvægi en mæti ekki þörfum láglaunafólks
Hópurinn telur að einfalda þurfi byggingarreglugerðir, lækka lánskostnað óhagnaðardrifinna íbúðafélaga og sæmræma áætlanir ríkis- og sveitarfélaga í húsnæðismálum.

Forsætisráðherra segir tillögur átakshóps dýrmætan vegvísi
Í tillögunum er meðal annars að finna hugmyndir um óhagnaðardrifið leigufélag aðila vinnumarkaðarins og leiðir fyrir sveitarfélög að flýta skipulagsferli sínu.

Segir lífskjör stórra hópa geta batnað verði húsnæðistillögur að veruleika
Formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga telur að stjórn sambandsins lýsi yfir ánægju með tillögur átakshóps forsætisráðherra í húsnæðismálum. Mörg sveitarfélög hafi nú þegar sótt eftir stofnframlögum til uppbyggingar á leiguhúsnæði.